Andvari - 01.01.2008, Síða 34
32
KRISTINN KRISTMUNDSSON
ANDVARI
að hlaupa undir stýrið hvenær sem kallað væri“.32 Hann kveðst raunar
hafa sætt nokkurri gagnrýni fyrir þetta mat á kennurunum þótt rétt hafi
reynst. Uppgjör hans er um leið svar við slíkri gagnrýni:
Ég fann vel að hægt var að skýra mína framkomu þannig, að í rauninni væri ég
brotlegur gagnvart mínu höfuðskyldustarfi, en sjálfum fannst mér alltaf, að ég
þyrfti að hafa mörg járn í eldinum til þess að njóta mín, ennfremur var ég mjög
hneigður fyrir að taka þátt í málefnalegri baráttu og þjóna þannig staðfastri lífs-
skoðun minni. Þá kemur og til þegnlegur réttur manna til þátttöku í opinberum
málum, einnig þó að þeir séu í opinberum, launuðum stöðum. Ef til vill hefur
eitthvað tapazt hér heimafyrir vegna fjarvista minna á Alþingi, en fullvíst er, að
ýmislegt ávannst að hinu leytinu. Ég kynntist persónulega mörgum mönnum,
sumir þeirra höfðu mikil völd, sjálfur lærði ég ýmis þýðingarmikil vinnubrögð,
sem þá þegar, en einkum þó síðar, komu mér að ómetanlegu gagni í baráttunni
fyrir framþróun hér á Laugarvatni. Enn í dag á Laugarvatn örugga stuðnings-
menn á Alþ. og víðar úr öllum stjórnmálaflokkum, meðal annars fyrir samstarf
mitt við þá innan Alþingis og utan þess. Þetta kom bezt fram í sambandi við
stofnun menntaskólans. Auk þess óx mér kjarkur og víðsýni, sem ég svo beitti
Laugarvatni til hagsbóta.33
Bjarni var fyrst kjörinn á Alþingi vorið 1934 fyrir Framsóknarflokkinn
sem annar þingmaður Arnesinga. Flokkurinn hafði átt báða þingmenn
þess kjördæmis frá 1923 en í kosningunum 1933 missti hann annan þeirra
til Sjálfstæðisflokksins. Fyrir kosningarnar 1934 hélt Framsóknarfélag
Arnessýslu prófkjör um frambjóðendur. Bjarni tók þátt í því og fékk
238 atkvæði en Magnús Torfason sýslumaður, sem skipað hafði annað
sætið, aðeins 200. Jörundur Brynjólfsson, fyrsti þingmaður Arnesinga
frá 1923, hlaut 353 atkvæði og skipaði fyrsta sætið á lista flokksins. í
kosningunum fékk Jörundur 891 atkvæði en Bjarni 888 og felldi þar
með Eirík Einarsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem fékk 836
atkvæði.34 Bjarni endurheimti þar með þingsætið fyrir Framsókn þrátt
fyrir nokkurn klofning sem Bændaflokkurinn hafði valdið, reynd-
ar í báðum flokkunum. í næstu kosningum, 1937, hlaut Bjarni enn
meira fylgi, fékk 1243 atkvæði á móti 1075 atkvæðum Eiríks.35 Næstu
alþingiskosningar voru ekki fyrr en 1942, hafði verið frestað um ár
vegna styrjaldarástandsins. Þá brá svo við að Bjarni ákvað að bjóða
sig ekki fram í Arnessýslu heldur freista þess að vinna þingsæti fyrir
Framsóknarflokkinn í Snæfellsnessýslu. Líklega hefur hann séð það
fyrir að með nýjum kosningalögum, sem fyrirsjáanlegt var að yrðu
í gildi við aðrar kosningar þetta ár, héldi flokkurinn ekki tveimur