Andvari - 01.01.2008, Síða 141
GERÐUR STEINÞÓRSDÓTTIR
Brautryðjandinn Torfhildur Þ. Hólm
og sögulega skáldsagan
Torfhildur Þorsteinsdóttir Hólm var brautryðjandi í íslenskum bókmenntum.
Skáldsaga hennar Brynjólfur Sveinsson biskup er fyrsta sögulega skáldsagan
sem rituð var á íslensku og jafnframt fyrsta skáldsaga eftir konu. Torfhildur
bjó þá í Kanada, þar sem hún dvaldist í þrettán ár, og á Möðruvöllum við
Islendingafljót skrifaði hún bókina um Brynjólf biskup. Það var árið 1880
og hún 35 ára gömul, en bókin kom út í Reykjavík árið 1882, sama ár og
Verðandi, tímarit raunsæisstefnunnar. Hún gerðist afkastamikill rithöfund-
ur, skrifaði Eldingu, sem er söguleg skáldsaga um kristnitökuna, og sögur
um biskupana Jón Vídalín og Jón Arason. Hún gaf út tímarit fyrst íslenskra
kvenna, Draupni, þar sem sögurnar um Jón Vídalín og Jón Arason birtust
sem framhaldssögur. Tímaritið Tíbrá var fyrsta tímarit ætlað börnum hér
á landi. Síðar þegar Torfhildur leit yfir farinn veg skrifaði hún: „Ég var sú
fyrsta sem náttúran dæmdi til þess að uppskera hina beisku ávexti gamalla
rótgróinna hleypidóma gegn litterærum dömum.“
Prestsdóttir úr Suöursveit
Torfhildur fæddist 4. september 1845 á prestssetrinu Kálfafellsstað í Suður-
sveit. Foreldrar hennar voru séra Þorsteinn Einarsson og Guðríður Torfadóttir.
Að henni stóðu merkar ættir fræðimanna og trúarleiðtoga. f móðurætt rakti
hún ættir til Finns Skálholtsbiskups Jónssonar, kirkjusöguhöfundar, föður
Hannesar biskups, og í föðurætt til séra Jóns Steingrímssonar eldprests.
Áhugi Torfhildar á biskupasögum og trúmálum var því gamall ættararfur.
Sautján ára hélt hún til hinnar ungu höfuðborgar til að læra „kvenlegar hann-
yrðir“. Hún bjó hjá Jóni Péturssyni háyfirdómara í Landsyfirrétti. Þar var gott
bókasafn og Jón lagði stund á fræðistörf, einkum ættfræði og persónusögu.
Lærði skólinn var þá lokaður konum, en Torfhildur sótti einkatíma í ensku og
hannyrðum. Varðveist hefur á Kálfafellsstað rauður hökull og á hann saumuð
áletrun: „Þessi hökull er gefinn Kálfafellsstaðarkirkju af systrunum Ragnhildi