Andvari - 01.01.1950, Blaðsíða 10
6
Jón Guðnason
ANDVARI
Fyrri kona Ólaís á Kalastöðum var Málmfríður Guðmunds-
dóttir frá Hlíðarhúsum við Reykjavík. Áttu þau börn nokkur,
og var meðal þeirra Pétur hattari í Reykjavík. Dóttir Ólafs, áður
en hann kvæntist, var Ragnhildur, kona Gunnars stúdents á
Pllíðarfæti í Svínadal Þorsteinssonar, prests á Hesti, Sveinbjarn-
arsonar.
Síðari kona Ólafs var Kristín Þorvarðsdóttir frá Brautarholti
á Kjalarnesi, Oddssonar, prests á Reynivöllum, Þorvarðssonar.
Eru þar rniklar ættir að baki, sem of langt yrði að rekja. Kona
Þorvarðs í Brautarholti og móðir Kristínar var Þóra Guðmunds-
dóttir frá Fljótsdal, Nikulássonar sýslumanns, Magnússonar, Bene-
diktssonar klausturhaldara, er átti Sigríði stórráðu, Pálssonar
sýslumanns, Guðbrandssonar, biskups á Hólum, Þorlákssonar.
— Að Ölafi látnum giftist Kristín Árna Jónssyni á Lundum, bróð-
ur Búa prófasts á Prestsbakka. Hún lézt 30. okt. 1871, 73 ára.
Meðal barna Ólafs Péturssonar og Kristínar Þorvarðsdóttur
var Þorvarður, hreppstjóri á Kalastöðum og varaþingmaður Borg-
lirðinga. Þorvarður hreppstjóri var atgervismaður, þótt eigi væri
eins framkvæmdasamur og faðir hans, bókamaður fágætur á þeirri
tíð og ritfær í bezta lagi, enda þótt hann stundaði eigi þá íþrótt
að staðaldri. Eru allmargar sögur frá hans hendi í þjóðsögum
Jóns Árnasonar. Um eina þeirra segir dr. Guðbrandur Vigfús-
son í formála þjóðsagnanna, að hún sé svo vel sögð, ,,að hún
minnir á það, sem bezt er sagt á íslenzku, t. d. Njálu“. Þorvarður
hreppstjóri lézt 29. nóv. 1872, á 44. aldursári. Kona hans var
Margrét Sveinbjamardóttir, prests á Staðarhrauni, Sveinbjamar-
sonar. Meðal barna þeirra var Þorvarður prentsmiðjustjóri í
Reykjavík. Margrét átti síðar Ólaf járnsmið Þórðarson.
Stuttu áður en Þorvarður hreppstjóri kvongaðist, eignaðist
hann son, er hlaut nafnið Óli Kristján, fæddur 7. okt. 1855.
Móðirin var ung stúlka, Þóra Þórðardóttir, hreppstjóra í Syðri-
Görðum í Staðarsveit, Tómassonar við Búðir, Helgasonar tíu-
auraskeggs, Sigurðssonar. Síðari kona Þórðar hreppstjóra og móðir