Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1950, Page 61

Andvari - 01.01.1950, Page 61
andvari Stefnt að höfundi Njálu 57 að gesturinn vill svíkja þig og hefir látið frá lokur.“ Þorkell mælti: ,,Eigi mun gáð hafa verið að setja fyrir lokurnar." Síðan sofnaði hann,“ en húsfreyja hverfur af sjónarsviðinu, öldungis eins og ekkert hafi í skorizt. Hlutverki hennar var lokið. Og Rindill skýtur slagbrandinum frá að nýju, athugasemdalaust. Fljótt á litið má þetta virðast furðulegur samsetningur. Þor- kell á sökótt við menn og getur búizt við fjörráðum. Samt hirðir hann ekki hót um aðvaranir konu hinnar. Voru þær þó sannar- lega á traustum rökurn reistar. Þorgerður og Guðmundur ríki sjá við fyrstu sýn, hvern mann Rindill hefir að geyma. En Þorkell, hann er steinblindur og ber sig að sem fáráðlingur. Þó er það ekki heimska, sem veldur hinu annarlega hátterni hans, að hyggju söguritarans. Rétt eftir að Rindill hafði framið svikræði sitt, segir Þorkell við Guðmund ríka: „Eigi komst þú fyrr en ég ætlaði." Setningin varpar skærri birtu á sálarlíf Þorkels. Það samrýmist ekki skapgerð hans að viðurkenna misskilning sinn eða yfirsjónir. Hann þóttist hafa gengið úr skugga urn það, er Rindil bar að garði, að sá maður væri ekki „bráðhættulegur“ og þar við varð að sitja, jafnt þótt flugumaðurinn gerði sig beran að hrögðum. Orð húsfreyjunnar: „Gesturinn vill svíkja þig og ^efir látið frá lokur“ hljóma sem markleysuhjal í eyrum Þorkels. Hann er sýnilega einn þeirrar rökheldu manntegundar, sem ris öndverð gegn öllum heilræðum og varnaðarorðum, hvaðan sem þau koma. Um Þorkel má víst segja hið sama, sem haft er eitir Njáli um Kaupa-Héðin: „Þykist einn vita allt.“ Það er engin hending, að Þorkell er kynntur á þessa leið í Ljósvetninga S.?8U: „Þorkell hákur, sonur Þorgeirs lögsögumanns, bjó þá að P^ará í Ljósavatnsskarði. Hann var einlyndur og hetja mikil. Hann 'alði fátt hjóna og átti þó sökótt.“ Með afdrif hans í huga skrifar rófundur þetta. Og aftur er vikið að hinum háskalega skapgerðar- Ul'esti hans, þegar Guðmundur ríki varar Rindil við honum með svofeldum orðum: „En Þorkell er illur viðtakna og ekki samþykkur v'ð aðra mann.“ Sökum þverúðar sinnar og óráðþægni er Þorkeli
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.