Andvari - 01.01.1950, Blaðsíða 97
andvari
Stefnt að höfundi Njálu
93
hans er vitnað og með þeim hætti, að telja má líklegt, að eitthvað
af sögnum um hina fornu Ljósvetninga séu frá honum komnar.
Lætur það mjög að líkum, að til þeirra hafi Þorvarður Þorgeirs-
son átt ætt að telja. Svo hyggja og vitrir menn, að af þessari ætt
hafi söguhöfundur verið.
XII. EINMÁNAÐARSAMKOMA.
Á einmánuði 1258 riðu þeir Sighvatur Böðvarsson og Sturla
Þórðarson norður til Eyjafjarðar og hugðust hefna vígs Þorgils
skarða. „Gaf þeim veðráttu svo illa, að menn vissu eigi dæmi
til, að jafnhart vor væri. Komu þeir á Grund nær náttmáli.
Þorvarði hafði komið njósn um kveldið eftir nón af Jóni í
Glæsibæ. Llafði Þorvarður þegar hrott riðið og út í Kaupang og
ætlaði þegar norður af héraði, því að nær ekki gekk manna upp
mcð honum. Sighvatur vildi þegar ríða eftir Þorvarði. Var
það ætlað, að hann myndi eigi lengra ríða en til Kaupangs.
Reið Sighvatur ofan um nóttina efdr firði. Llafði hann nær
Ijóra tigu manna. Og er þeir komu í Kaupang, var þeirn sagt,
að Þorvarður var riðinn út til Svalbarðs, ef hann væri eigi á
heiði riðinn. Menn sáu reið Þorvarðs. Riðu þeir Sighvatur þá
eftir þeim, en þeir urðu eigi meir en tíu. Varð þá aftur að
hverfa."
Þá er Koðrán Guðmundsson hafði hlotið banasár í orustunni
v'ð Kakalahól, varð Eyjólfi bróður hans að orði: „Tjaldið um
Koðrán. Eigi nenni ég að leita honum hér lækningar, og skal
færa hann til Svalbarðs til Þorvarðs læknis.“ . . . Nú var fram-
oiðið dagsins, en Eyjólfur eggjaði atgöngu." Af bróðurhefnd-
lnni vai'ð þá ekki frekar en hjá Sighvati, er hann reið eftir Þor-
varði frá Kaupangi, og fór Eyjólfur með Koðrán til Svalbarðs.
>>En Koðrán andaðist um nóttina og hörmuðu menn það mjög.
>inn var færður inn til Eyjafjarðar og búið vel um hans líkama.“
c'tt a undan frásögninni af eftirreið Sighvats er í Þorgils sögu
Siemt frá lífláti Þorgils skarða að næturlagi. Þar getur að líta