Menntamál - 01.04.1967, Blaðsíða 38
32
MENNTAMÁL
að komast út fyrir hringinn og skilja, að eitt atvik leiði af
öðru. Því hættir til að læra samböncl að hermikrákuhætti.
Betur sett barn hefur þegar frá upphafi komizt í tæri við
skýringar orsaka og afleiðinga. Það getur gert sér grein fyrir
afleiðingunum af tilteknu atferli. Ennfremur stendur at-
ferli ávallt í sambandi við orð og setningaskipan og notkun
málsins. Það er liægt að ráða orsakasamhenginu, til dæmis
er liægt að komast hjá löðrungum með því að taka upp
ákveðið hátterni. Með því að skilja, hvaða samband er á
milli orsaka og afleiðinga, verður komizt hjá óþægindum.
Það er samband milli orða og verka, sem hægt er að skilja.
Orðin verða greind eftir samhengi röksemda og rökfærslu.
Þetta eitt imeytir heiminum í viðfangsefni, sem hægt er að
last við og breyta, hafa vald á innan settra takmarka. Heim-
ur lágstéttarbarnsins er á þann veg, sem ekki verður breytt,
staðfestuheimur. Og því verður að hlýðnast. I þessu felst
mikið öryggi fyrst í stað. Því harðara er að vakna af dramni
og finna að öryggið hefur brugðizt.
Ef túlka á þýðingu aðferðanna, sem mæðurnar tvær beittu
í strætisvagninum, lýsir hin ólíka beiting áhrifavalds for-
eldranna ólíku uppeldisatferli — tvennskonar samferli for-
eldra og barna. I,ágstéttarfaðirinn beitir barnið á annan hátt
valdi til þess að fá það til að hlýðnast heldur en miðstéttar-
faðirinn. Fortölur og röksemdir miðstéttarföður enda ekki
í eftirgjöf, heldur kemur hann, — kannske eftir mörg milli-
stig — fram vilja sínum gagnvart barninu, enda verður það
að fá upplýsingar um reglur og takmarkanir sviðsins, sem
]>að lifir á. Lágstéttarfaðir hillist til að knýja fram hlýðni,
áður en barnið hefur kynnzt reglum sviðsins og takmörkun-
um, þ. e. hann skipar beint fyrir og beitir ógnunum og
jafnvel refsingum, ef eitthvað iiggur við.
Hvernig fer móðirin að? í miðstéttarfjölskyldu tnlnr hún
við barnið, hún er aðalviðræðuaðili þess. Hún byrjar á því
að tala við það, áður en það getur skilið orð hennar. Hún
tengir látbragð og viðmót við ákveðnar setningar í ákveðnu