Menntamál - 01.04.1967, Page 48
42
MENNTAMAL
er á boðstólum. Það fer fyrst og fremst eftir því, að
hve miklu leyti skilningurinn er með í förinni. Gildi
hinna nýju hugtaka er framar öðru fólgið í því að
auðvelda skilning á atriðum sem áður hafa oft verið
óljós og legið í láginni.
Aðalgalli reiknings og stærð-
fræðikennslu hérlendis hygg
ég hafi verið sá að hún hefur
verið of vélræn, beinzt um of að vissri tegund leikni,
en ekki lögð nóg áherzla á yfirsýn og skilning. Aðferð-
ir sem ekki hafa nægan skilning að bakhjarli gleymast
fljótt aftur og koma að iitlu haldi. Nægilega djúpur
skilningur á grundvelli aðferðar verður sennilega að
einhverju leyti á kostnað lrraða og leikni í bili, en
endist mönnum lengur og betur. Mér virðist einmitt
hafa borið mjög á því hér að námsefnið hafi verið
um of hólfað sundur í rækilega aðgreinda flokka.
Nemendum hefur verið kennd sérstök aðferð á hvern
flokk, en samhengið milli flokka lrefur orðið ósýnilegt
með öllu, þótt oft sé um að ræða náskyld efni, skóg-
urinn hefur ekki sést fyrir einstökum trjám. Annar
galli námsefnis og kennslu virðist mér hafa verið sá, að
sjónarmið sem talin hafa verið hagnýt hafa ráðið of
miklu. Reikningur virðist einkum kenndur til þess að
menn láti ekki hlunnfara sig í viðskiptum, geti mælt
sér út kálgarðsskika ef á þarf að halda, og annað því um
líkt, en ekki vegna þess að hann hafi gildi í sjálfum sér.
Þótt ekki sé litið á það, að tíminn hefur í mörgum
tilvikum hlaupið all óþyrmilega frá þessum svoköll-
uðu hagnýtu viðfangsefnum, þá er hitt jafnvel meira
saknaðarefni að mönnunr hefur að mjög verulegu leyti
sést yfir innra gildi stærðfræðinnar. Tækifæri til að
kynna börnum og unglingum þá fegurð sem býr í
stærðfræðilegri hugsun, jafnvel þegar hún ijallar um
Vanræktir
möguleikar