Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1944, Blaðsíða 36
36
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
tóku þau til fósturs, gengu þeim í foreldra stað og gáfu
þeim hið besta uppeldi. Stúlkan, Svafa, er gift efnilegum
gáfumanni, V. C. Smith, aðstoðarkennara við Háskóla
Illinois ríkis í Chicago; pilturinn, Daníel, er einnig vel
gefinn og efnilegur maður. Er hann giftur og á eina
dóttir, Nadine að nafni. Heimili þeirra hjóna er einnig
í Blaine, en hann starfar nú á vegum Bandaríkjastjórnar-
innar við landmælingar. Hver sem vill þekkja Andrés
þarf að kynnast honum á heimili hans, og helzt að sjá
hann meðal smábarna. Er það næsta lærdómsríkt að
sjá hvernig þessi maður sem oft virðist svo harður og
óbilgjarn, maður sem í bernsku sinni fór að líkindum að
mestu á mis við allan innilegan heimiliskærleika, verður
bljúgur og blíður er litlu börnin sitja á knjám hans,
hvernig hann ruggar sér með þau og syngur þeim vöggu-
ljóð um leið og þau halla sér upp að brjósti hans og leggja
hendur um háls honum.
Heimili þeirra Andrésar og Guðbjargar hefir löng-
um staðið í þjóðbraut. Þangað hafa jafnan legið leiðir
flestra ferðalanga sem í bygðina hafa komið, og er gest-
risni heimilisins rómuð að verðleikum. Þau hjón hafa ■
gott lag á því að láta gestum sínum líða vel. Húsmóðirin
er hvers manns hugljúfi. Húsbóndinn jafnan glaður og
reifur, með ótal umtalsefni á takteinum: sögu íslands,
skáldskap, stjórnmál, eða trúmál, eftir þekkingu og smekk
gestanna. Húsbóndinn er margfróður og stálminnugur.
Hann hefir gott bókasafn heima hjá sér, og hefir einnig
um mörg ár haft annað af tveimur bókasöfnum Islend-
inga í bygðinni á skrifstofu sinni. Þau hjón fóru skemti-
ferð til Islands fyrir nokkrum árum, og dvöldu þar nokkra
mánuði. Hafa þau bæði ánægju af að lifa þær stundir
upp aftur með gestum sínum. Hættulegustu umtalsefnin
eru stjórnmál eða trúmál. Er slíkt ber á góma, og gestur-
inn hefir sannfæringu sem ekki stemmir við skoðanir hús-
bóndans getur stundum slegið í brýnu. En alt jafnast