Kirkjuritið - 01.09.1950, Síða 12
164
KIRKJURITIÐ
land álfunnar, Norðurlönd og Bretland í fyrirlestra-ferðum
eða til að halda hljómleika. Til dæmis flutti hann í þessari
ferð í Frankfurt merkilegan fyrirlestur um Goethe, og
vann fyrir hann Goethes-verðlaunin, sem voru veitt sem
viðurkenning fyrir þjónustu í þágu mannúðarinnar. Þessi
fyrirlestur þykir snilldarverk og var hann þýddur og birt-
ur í Hibbert Journal sama ár.
Því fé, sem hann fékk að þessu sinni í verðlaun, varði
hann til að byggja það, sem hann kallaði Gestahúsið á
æskustöðvum sínum í Gúnsbach. Teiknaði hann það sjálfur
og réði búnaði þess að öllu leyti. Var það hugsun hans
að eiga þar athvarf á ferðum sínum í Evrópu og geta
boðið þangað hinum mörgu vinum og velunnurum, sem
hvaðanæva þyrpast að til að sjá hann og kynnast honum,
enda hefir þar iðulega verið gestkvæmt. Húsið er byggt
í undurfögru umhverfi í ofurlitlu dalverpi. „Hæðin á að
verja það fyrir kúlum í næsta stríði,“ sagði hann. Vinir
hans urðu undrandi. Schweitzer vissi hvað koma mundi.
Árið 1929 fór hann enn til Lambarene og hefir síðan
dvalið þar löngum, nema hvað hann hefir öðru hvoru
skroppið til Evrópu í fyrirlestraferðir, til að halda hljóm-
leika eða gefa út bækur sínar. Má benda á, að ágóðanum
af þessu starfi hefir hann að langmestu leyti varið til að
standa straum af framkvæmdum sínum í Lambarene.
II.
Hin fjölþætta ytri ævisaga Alberts Schweitzers verður
ekki sögð í stuttu máli, nema í örstuttu yfirliti, og þvi
síður verður hægt að gera listastarfi hans, ritverkum í
guðfræði og heimspeki eða mannúðarstarfi hans nokkur
veruleg skil, því að hvert þetta svið er heill heimur út af
fyrir sig. En þó verður aðeins á þetta að drepa. Vil ég
fyrst minnast örlítið á tónlistargáfu hans og starfsemi á
því sviði.
Eins og áður er að vikið, komu fram í honum korn-