Kirkjuritið - 01.09.1950, Side 38
190
KIRKJURITIÐ
er jafn mikilsvert og fyrirbænin í baráttunni fyrir mann-
gildið. Þegar við biðjum af hjarta fyrir öðrum, þá greið-
um við kærleik Guðs veg til þeirra. Við temjum okkur
að líta á þá og breyta við þá í anda kærleikans guðdóm-
lega. Vér byggjum á því bræðralagi, á þeim fjölskyldu-
anda, sem er höfuðkjarni og skilyrði manngildisins.
Stríðið fyrir manngildinu, er við öll verðum að heyja,
svo framarlega sem villimennska náttúruhyggjunnar á ekki
að sigra, — það stríð verður fyrst og fremst að heyja á
vígstöðvunum hið innra — vigstöðvum hjartans.
Heiðurssamsæti.
Séra Halldór Jónsson á Reynivöllum var kvaddur af safn-
aðarfólki sínu með veglegu heiðurssamsæti, er hann lét af
prestsskap í vor. Hann flytzt nú hingað til bæjarins.
Skálholtsdagur.
Sunnudaginn 23. júlí var haldin á vegum Skálholtsfélagsins
fjölsótt guðþjónusta og útisamkoma í Skálholti. Þótti vel tak-
ast, og verður vonandi til eflingar áhuga manna á endurreisn
Skálholtsstaðar.
Kristilegt stúdentamót.
Kristilegt stúdentamót á biblíulegum grundvelli var haldið í
Reykjavík 27.—30. júlí. Var það fjölsótt, einkum frá Noregi.
Komu þaðan 112 stúdentar með þá Hallesby prófessor og Indre-
bo Björgvinjarbiskup í fararbroddi. Fundir voru haldnir í húsi
K.F.U.M. Erindi og ræður voru flutt fyrir almenning í Dóm-
kirkjunni og á Arnarhólstúni. Séra Jóhann Hlíðar stjórnaði
mótinu.
Minningarrit um séra Pál Sigurðsson.
Bolvíkingafélagið í Reykjavík hefir nýlega gefið út fallegt
minningarrit um séra Pál Sigurðsson frá Bolungarvík, sem and-
aðist síðastliðið ár. Hefir Jóhann Bárðarson samið, en hann var
nákunnugur séra Páli um fjörutíu ára skeið, vinur hans og
samverkamaður. Ritið er skrifað af miklum skilningi og samúð
og heldur réttilega og vel á lofti mynd hins mæta manns.