Kirkjuritið - 01.09.1950, Síða 46
198
KIRKJURITIÐ
unum: Ver allur í þessu, og getur því einnig eggjað aðra
lögeggjan.
Heimili biskups og biskupsfrúarinnar má telja í vissum
skilningi sameiginlegt heimili presta á Islandi og margra
fleiri kirkjunnar manna. Fer þar saman frábær gestrisni
og góðvild. Enda lágu þangað gagnvegir fjölmargra þenn-
an afmælisdag.
Kirkjuritið árnar biskupi allrar blessunar og óskar þess,
að sem lengst megi njóta starfa hans.
Hátíðarguðsþjónusta í Strandarkirkju
var haldin á annan hvítasunnudag að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Biskupinn þjónaði fyrir altari, en sóknarpresturinn séra
Helgi Sveinsson prédikaði. Kirkjukór frá Hveragerði annaðist
söng undir stjórn Karítasar Ólafsdóttur. Að messu lokinni gekk
söfnuðurinn með biskup í fararbroddi að styttu þeirri, sem frú
Gunnfríður Jónsdóttir hefir gjört og nefnir Landsýn. Það er
konumynd, er stendur á stalli og heldur á krossmarki í annari
hendi og horfir til hafs. Boðar hún hjálp af hæðum á neyðar-
stund. Biskupinn hélt ræðu, dró því næst hjúp af styttunni og
lýsti blessun yfir Strandarkirkju, söfnuði hennar og íslenzku
þjóðinni allri. Kirkjukórinn söng sálma, á undan og eftir. At-
höfnin öll var mjög hátíðleg.
Biskupsvísitazía.
Biskupinn vísiteraði í júlímánuði allar kirkjur í Suður-Þing-
eyjar og Norður-Þingeyjar-prófastsdæmum.
Vígsla Bolungarvíkurvegar.
Biskupinn, dr. Sigurgeir Sigurðsson, vígði nýjan þjóðveg um
Óshlíð til Bolungarvíkur laugardaginn 26. ágúst. Fór vígslan
fram við kross einn mikinn úr steinsteypu á hamrastalli utan
til við miðja hlíðina. Á undan og á eftir ræðu biskups voru
sungnir sálmar undir stjórn Jónasar Tómassonar tónskálds. —
Síðar um daginn var samkoma haldin í Bolungarvíkurkirkju,
og fluttu þeir þar ræður, biskupinn, vegamálastjóri og þing-
maður kjördæmisins.