Kirkjuritið - 01.09.1950, Blaðsíða 65
PRESTASTEFNAN 1950
217
„í framhaldi af umræðum um útvarpsmessur skal yður til-
kynnt, að útvarpsráð hefir fallizt á, að framvegis og þar til
öðruvísi kynni að verða ákveðið annist skrifstofa yðar messu-
val fyrir útvarpið.
Útvarpsráð gerir þó þann fyrirvara, að útvarpsmessum verði
ekki fjölgað frá því sem verið hefir, og messutíminn verði
yfirleitt kl. 11 f. h., en annars ákveðinn í samráði við skrifstofu
dagskrár, og að skrifstofa yðar tilkynni dagskrárskrifstofunni
messurnar með nægum fyrirvara hverju sinni.
Óskar útvarpsráð góðrar samvinnu við yður í þessu máli.“
Ég nota þetta tækifæri til þess að þakka Útvarpsráði góðar
undirtektir um þetta mál, um leið og ég vil mælast til þess við
þá presta utan Reykjavíkur, sem kynnu að æskja að flytja
útvarpsguðsþjónustur, að þeir láti mig bréflega vita um það
með hæfilegum fyrirvara.
Honum, sem í hæðum býr og leitt hefir kirkju vora í storm-
viðrum, reynslu og baráttu liðins tíma, felum vér svo íslenzka
kirkju og störf hennar um ókomin ár — og tökum allir þjónar
hans í fullu trausti undir með skáldinu:
„Hann gætir vor af hæstum hæðum
og heilög blessar mál,
hann kveikir líf í köldum æðum
og kærleikseld í sál.
Hann sendir mátt til sannra dáða
og sýnir leið til viturlegra ráða,
og honum syngur kirkjan klökk
af kærleik hreinum lof og þökk“.
Aðalmál prestastefnunnar.
Aðalmál prestastefnunnar var að þessu sinni: EINING
KIRKJUNNAR, og fluttu þeir um það framsöguerindi séra
Helgi Sveinsson frá Hveragerði og séra Sigurður Pálsson frá
Hraungerði. Á eftir fóru fram umræður og hnigu þær í sömu
átt og framsöguerindin, að eining kirkjunnar verði henni mikill
styrkur í starfi. í tilefni af þessu máli var borin upp og sam-
þykkt ályktun, sem hér segir: Prestastefnan ályktar, að tekin
skuli upp markvissari barátta og árvakrari en hingað til gegn