Prestafélagsritið - 01.01.1920, Page 39
34
Hannes Þorsteinsson:
Prestafélagsri tid.
skýrir biskup honum frá veikindum sínum, og að hann
sé þvi ekki lengur fær um að gegna biskupsembættinu
án aðstoðarmanns; hafi því Múller amtmaður skipað til
bráðabirgða séra Jón Vídalín officialis i Skálholtsstifti til
að »visitera« kirkjur, vígja presta m. fl., þangað til kon-
ungsstaðfesting komi, eða önnur ráðstöfun verði gerð.
Óskar biskup mikillega, að konungur skipi séra Jón að-
stoðarmann sinn og eftirmann, og að hann fái vonarbréf
fyrir biskupsembættinu, því að hann kveðst ekki þekkja
nokkurn annan jafnduglegan og jafnhæfan honum til
þessa embættis. Segir biskup meðal annars um séra Jón;
»Den gode mand er mig velbekient for hans lœrdom, dgd
og mange store gaver, som Gad haver prgdet ham med
fremfor fleste af den geistlige Orden her i deite fattige
landa1). Á þetta skjal biskups hefir Múller amlmaður
ritað langa umsögn (ódagsetta2) og mælir með þessari
beiðni hans. Og um séra Jón Vldalín farast amtmanni
meðal annars svo orð: »Han skal vœre en meget lœrd
mand og i Grundsprogene som ellers i andre kiönne Viden-
skaber vel verseret, hvorudi ingen eller faa hannem skal
overgaa, hvilket jeg siden at have hört hans ire/fvlige prœ-
diken og lærde discurser hannem og maa tillæggev.
Síðara bréf séra Jóns Vídalíns, er ég fann i Ríkisskjala-
safninu, er umsóknarbréf hans til konungs um biskups-
embættið í Skálholti, ds. í Görðum 25. júni 1697, og skír-
skotar hann þar til bréfs Þórðar biskups, er hann sendir
með umsókn sinni, og getur jafnframt aðalefnis þess.
Skýrir hann og frá, að hann hafi verið aðstoðarmaður
1) Séra Jón Halldórsson i Hitardal (Biskupasögur I, 350) hefir ekki liaft sannar
spurnir af þessu bréfi biskups, og er svo aö sjá, sem lionum þyki óliklegt, aö
biskup hafi óskaö séra Jóns Vidalins sem eftirmanns, og ekki laust viö, að
sveigt sé að séra Jóni eöa amtmanni, að þeir liafi skirskotað til bréts biskups,
sem aldrei hafi ritað verið, og þeir þvi ekki i liöndum haft, þvi að séia J. H.
segir meðal annars: »Anno 1697, viku fyrir biskupsins andlát, var þvi og yfir-
helgaö, að M. Pórður hefði skömmu fyrir sitt andlát supplicerað til kongsins,
að séra Jón mætti verða biskup eftir sig og liann þar til recommenderaö hi&
bezta«.
2) Liklega rituð samdægurs i Skálholti, sbr. siðar.