Blanda - 01.01.1932, Side 12
6
að fiska, en enga fundum vér, því vér gátum ekki
að þeim siglt fyrir logni. Um nóttina forlétum vér
Færeyjar, og fengum gó'Öan norðvestan vind, svo vér
fengum Hetland1) í sigti þann 12. Sept., nær um
miðjan dag. Þetta land er með háum fjöllum og hlíð-
um, sem hér. Þennan góða vind höfðum vér allt til
þess 14. Sept.; þá fengum vér Noreg í sigti, og svo
mikinn norðvestan vind, að eg þenkti, allt mundi
ganga i stykki. Eg var þá mjög hljóður, vildi þá
heldur hafa verið í íslandi en þar. í þessu veðri sló
svo niður voru skipi á síðuna, að sjórinn rann upp
yfir siglu, og lá það svo á bumbinum2) heilar 2 stund-
ir. Skipherrann lét tilsegja fólkinu að befala sig guði.
Þessu næst gaf vor herra, því stundin var ekki kom-
in, að stóra seglið rifnaði í sundur, og þvi kastaði
skipið sér upp úr kafinu. Hleyptum vér svo með það
inn í Flekkiern3), sem er einn sjóstaður í Noregi.
Þar vorum vér í 3 daga að lagfæra reiðann aptur,
og þar skipið hafði lestz.4) Þar fór eg á land með
öðrum, og keypti mjólk og ost af bændum. Fengum
vér þá 3 potta af mjólk fyrir eina duggaravetlinga,
en fyrir ostinn, sem vóg 4 merkur, gáfum vér tvenna
vetlinga. Þann 19. Sept. leystum vér upp, og sigld-
um austur með Noreg. Þar eru miklir skógar á landi,
en við sjóinn hjörg mikil, en sumstaðar vikur, og þar
hús og byggð. Þann 21. Sept. komum vér að Langa-
nesi5) í Noreg; þar er kynt bál hverja nótt, svo
skipin skuli ei sigla upp á það á nóttunni, því ]iað
skagar svo langt fram í sjóinn. Þann 22. Sept. for-
létum vér Noreg og har þá ekkert til tiðinda, fyr
1) þ. e. Hjaltland.
2) Svo = bumbunni.
3) Svo, þ. e. Flekkefjord, fremur en Flekkerö.
4) =: laskazt.
5) Mun vera = Lindisnes, Líðandisnes.