Blanda - 01.01.1932, Page 22
i6
klukku, sem eg hefi séÖ á allri minni æfi; hún var
24 faðmar í kring neðan; henni var hringt af 12
mönnum. Þaðan reistum við að Gotu1) í Hessen.
Þar vorum við eina nótt. Það er furstans residentz. >
Þann 28. Febr. reistum við að Cassel2) í Hessen.
Þaðan er kongs Christians 5. drottning3) ættuð. Það-
an reistum við aptur og komum 3. Martii að Berlin
í Brandenborgarlandi. Þar var minn stallbróðir sett-
ur í fangelsi, en eg komst undan, fyrir því, hann vildi
ei verða soldat, og sat hann þar 3 vikur, og varð
að gefa 20 rd., að hann kæmist laus. En eg komst í
burt á einni nótt, og fór eg þá huldu höfði 4 mílur
að Spandor4). Það er eitt slot í Brandenborgarlandi,
og var eg þar 3 nætur. Þaðan reisti eg með einum
vagnmanni og að Dresden í Saxlandi. Þar heldur
churfurstinn af Saxen sitt residentz. Það er einn
sá fastasti5) staður, sem eg hef séð. Þar fékk eg t
einn góðan húsbónda. Og þá eg hafði verið hjá hon-
um í viku, gekk eg með öðrum 4 snikkarasveinum
í vinkjallara, en þá vér ætluðum að ganga heim um
kveldið klukkan 8, þá mættum vér 6 gullsmiðssvein-
um, og komum við í klamari6) við þá fyrir þá or-
sök, að einn af voru liði rasaði óviljandi á einn þeirra.
Þeir drógu strax út sína korðahnífa, svo vér urð-
um að verja vort líf. Vér báðum þá að vera tilfriðs,
því vér höfðum enga orsök við þá, og svo talaðist
það til, að 5 gáfu upp, en einn sagðist ekki skyldi
skilja við oss, fyr en einhver væri dauður. Svo var
þessi maður mikill, að vér höfðum allir nóg að verja
------------ 1
r) þ. e. Gotha.
2) =: Kassel í Hessen-Nassau.
3) Charlotta Amalie.
4) Svo, á að vera Spandau.
5) þ. e. ramlegast víggirtL
6) = illdeilur.