Blanda - 01.01.1932, Page 24
i8
iÖ og harðlega áklagaðir af þess hins dau'óa náung-
um. Voru oss þá færð hrein klæði í fangelsið, og
íærðir af þeim, þá vér komum frá ráðinu. Þann
síðasta laugardag, sem vér vorum færðir fyrir ráð-
ið, var eg svo máttdreginn, að eg gat ekki staðið
einn saman. Var eg þá studdur af tveimur soldát-
um, og ætluðum vér þá að auglvsa þann seka, hefði
guð ekki snúið því á annan veg, því strax, ráðið
sá vora eymd, aumkvaði það sig yfir bss og gaf oss
lausa, því þeir þóttust ei kunna að forsvara það fyr-
ir guði, ef vér dæjum allir. — í þessu plássi hef
eg þótzt líða þau mestu harmkvæli á minni æfi. Þar
var eg viku eptir það, svo eg hresstist nokkuð. Þann
I. Aug. reisti eg frá Dresden og að Nurinberg1) í
Scopinlandi2). Það er sá fallegasti staður, sem eg
hef séð, bæði upp á bygging og önnur herlegheit.
Þaðan reisti eg og að Reginsborg3) í Scopinlandi.
Þessi staður stendur við ána Rín4). Þar er sú lengsta
bryggja, sem eg hef séð, og hún gengur yfir um
ána Rín. Þaðan reisti eg á skipi ofan að Collin.5)
Það er ein hættuferð að fara ofan eptir þessari á,
því þar er einn pyttur í miðri ánni, sem vatnið renn-
ur rétt niður. Skipherrann bauð þá oss að fara á
land, sem ekki vildum hætta á að fara yfir um þenn-
an pytt, hvað og nokkrir gerðu. En eg hafði forvitni
að sjá þetta. Tvisvar snerist skipið í hring hjá þess-
um oytti, en í þriðja sinn gátum vér róið fram hjá.
Mikið sús og brús er þar að heyra niðri í. Margt
skip forgengur á þessu plássi með fólki og öllu, sem
ekki sést neitt af aptur. Frá Collin reisti eg að Mun-
1) þ. e. Núrnberg.
2) þ. e. Schwaben.
3) Regensburg.
4) Mun eiga að vera: Dóná.
5) líklega Kollin (Kolin) í Bæheimi.