Blanda - 01.01.1932, Page 38
32
fortalið fyrir satt, aÖ fyrir vestan skuli vera ein
kelda, sem kallast ölkclda1), bæÖi nærri Búðarósa-
kaupstað sem og Fróðárheiði, af hverjum ef menn
drekka, skal vatnið smakka sem eitt öl, svo þeir sem
það drekka, skuli finna sig hartnær hálfdrukkna, en
sem stund er liðin, kenna þeir þess þó ekki sama
úr því. Ef þeir vilja taka nokkuð af sömu keldu
með sér, þá smakkar það eins sem annað vatn.
Sumstaðar í klettum finnast smásteinar eða sand-
ur, er hafa messingarlit.2) í Papey fyrir austan,
þar sem kallast Ormsbœli, finnst nokkuð svoddan,
og viða í landinu er og að finna blauta steina, sem
kallast tálggrjót, sem með hnífi kunna að tálgast, og
er víðast, bæði upp í landinu og við sjósíðuna. Þar
eru ogsvo einslags steinar í Reyðarfirði fyrir aust-
an, sem eru hvítir og gagnskærir og glansa, sem
væru þeir fágaðir, kallast íslands kristallar,3)
Á íslandi er enginn rétt stór skógur, og ekki al-
staðar, en þar sem hann er, þá er þar birki, og ekki
stærra en þéna kann til smáhúsa til kvikfénaðar.
Ennnú eru þar þess slags steinar, sem gerast kunna
af slípsteinar, er þeir kalla hvcrfusteina4).
Ur 4. kapítula.
Þessi kapítuli eða kafli lýsingarinnar er, eins og
fyr getur, einkum áhrærandi arð af sjávarútvegi og
ýmislegt í sambandi við hann, en þó kennir ]jar
rnargra ólíkra grasa. Er í fyrstu rninnzt á, að byggð-
in sé aðallega meðfram sjávarströndinni umhverfis
og upp frá henni sumsstaðar upp undir hálendið.
1) þ. e. Rauðamelsölkelda.
2) látúnslit.
3) Það er vitanlega silfurbergið i Helgustaðafjalli.
4) Hér endar 3. kapituli lýsingarinnar.