Blanda - 01.01.1932, Page 145
139
f’óröur1) og heyrSi afar illa. Þar var líka prestur,
Brandur aÖ nafni2), hann var þá úti á Borðeyri.
Baðstofan var portbyggÖ og var stofa prests undir
iopti. Það var samningur okkur félaga, að Oddur
gengi íyrstur inn á bæjum, en eg síðastur. Þegar við
komum upp á pallskörina, sat þar á rúmi kona ein
aHgjörvileg og prjónaði. Þeir heilsuðu henni og þú-
'iðu hana. Eg hugði þetta prestskonuna, því hún var
mJÖg vel búin og hafði gildan gullbaug á hendi. Á-
ræddi eg að þéra hana, tók hún því og glotti við, en
eS hálf-fyrirvarð mig, ef eg hefði meint rangt. Rétt
a eptir heyrðist stígvélatramp í stofunni, og hvarf
bá konan. Var prestur kominn, drukkinn, og var
yondur. Kaffi fengum við um kveldið og morgun-
11111 og nóg hey handa hestunum, kostaði það ríkis-
dal. Þaðan fórum við að Bálkastöðum og fengum
Þar að drekka. Kom kona út með mjólkurkönnu,
varð nrér starsýnt á hana, og þóttist hafa séð hana
aður. Spurði hún úr hvaða sveit við værum og sögð-
um við það. Hún mælti: „Engan ykkar þekki eg.“
ViS sögðum: „Hefir þú nokkurntíma komið í Skaga-
fjörð?“ „Já,“ mælti hún, „eg var kaupakona eitt
suniar hjá Eiríki hreppstjóra í Djúpadal.“ Þá sagði
eg: „Þekkirðu mig ekki?“ en hún kvað nei við. Eg
sagði þá: „Eg er hann Simsi litli sonur hans.“ Gekk
hún þá til mín og lagði hendur uin háls mér og kyssti
mig marga kossa og sagði: „Þú varst góður piltur,
sem aHt þitt blessað fólk, og vertu hjá mér í nótt.“
P-n eg sagðist ekki geta slitið félagið. Konan hét
f,róa og átti fyrir mann Hálfdan Jóhannsson, Bjarna-
sonar prests á Mælifelli. Kvöddum við hana svo, og
D 1>. e. Þórður Árnason, faðir Þórðar læknis og Hjart-
ar rafmagnsfræðings í Ameríku.
-* Tömasson. síðast prestur í Ásutn (t 1891).