Blanda - 01.01.1932, Side 214
208
s. frv., alls 172 menn, en talan var í raun réttri
hærri, því að Snæfellsnessýslu vantaSi, enberþóekki
allskostar sarnan viÖ hinar einstöku skýrslur. Segii'
amtmaÖur, aÖ erfitt hafi verið að fást við þetta,
með því að íbúarnir hafi ímugust á Grænlandi og
hafi slæmt álit á því, en þeir sem lofi að fara, vilji
fá íslenzkan prest með sér, og það sé eðlileg krafa
og muni hentugast að fá einhvern, er sé að stunda
nám i Kaupmannahöfn. Svo hefði einnig verið ósk-
að af þessum væntanlegu Grænlandsförum, að þeir
fengju með sér íslenzkan forráðamann, til að hafa
á hendi útmælingu á byggingarstæðunum, engjum
etc. og ákveða hvar menn ættu að setjast að' til fisk-
veiða. Getur þess ennfremur, að hver fjölskylda geti
ekki komizt af með minna en 2 kýr, 12 kindur og
1 hest, en þetta verði alls fyrir 42 búsetta menn: 84
kýr, 504 sauðkindur og 42 hestar, auk 2 graðunga
og 8 hrúta, og reiknar svo út, hvað allt þetta muni
kosta. Með bréfinu sendir hann nafnaskrár í einu
lagi yfir þá fullorðna menn, karla og konur, með til-
greindum barnafjölda, er ráðizt hafi til fararinnar,
og loks ýtarlega áætlun um það, hve mikið bóndi
eða búandi maður með konu, vinnumanni, vinnukonu
og 2 börnum, þurfi til ársviðurværis og áhalda, og
ér allt smátt og stórt verðlagt, hvað fyrir sig, mjög
nákvæmlega á 4ýý blaði í arkarbroti.1) Er allhætt
við, að grænlenzku nefndinni hafi vaxið allur þessi
kostnaður nokkuð í augum, og viljað lækka seglin.
enda sést það ljósast á konungsbréfi til stiptamt-
manns 22. maí 1730, sem birt var á alþingi þá um
sumarið2), því að þar er ekkert minnzt á þessa 43
1) Brb. amtm. 1729, bls. 304—312, en Grænlandsfara-
skráin á bls. 294—303.
2) Bréf þetta er prentaS í Lagasafni M. Ketilss. Hb
395—397 og í Lovs. for Isl. II, 116—118.