Blanda - 01.01.1932, Side 300
294
neinar eiginlegar bernsku-endurminningar frá þeim,
og þó a'S eg hafi ritað nokkuS urn föSur minn áSur
í æfiminning hans þeirri, er eg lét prenta áriS 1900,
þykir mér þó hlýSa, áSur eg fer aS tala mikiS um
sjálfan mig, aS minnast hér nokkuS bæSi á föSur
minn og rnóSur, og nánustu forfeSur til beggja
handa.
Þorkell faSir minn var fæddur, samkvæmt prests-
þjónustubók Helgafellsklausturs, 5 Júní2) 1815 i
ElliSaey á BreiSafirSi. Var faSir hans Eyjólfur
Gíslason, prests á Breiðabólsstað á Skógarströnd,
Ólafssonar hiskups i Skálholti, og má finna þá ætt
rakta nokkuS i æfiminning föSur míns, í æfisögu
Dr. GuSbrands Vigfússonar í Andvara 1894, í ís-
lenzkum ArtiSaskrám, sem prentaSar voru i Kaup-
mannahöfn 1892—96, og aS nokkru leyti í I. bindi
af Biskupasögum Jóns prófasts Haldórssonar í Hít-
ardal, sem Sögufélag'iS gaf út á árunurn 1902—1910.
MóSir föSur míns og kona Eyjólfs var GuSrún
Jónsdóttir, prests á Bægisá, Þorlákssonar, og Mar-
grétar konu hans Bogadóttur hins gamla í Hrafns-
ey. Margrét andaSist 10. Dec. 1808, 57 ára gömul.
HafSi föSurætt hennar í hina næstu liSi geingiS
2) í æfiminning hans 1900 hefi eg talið hann fæddan
6. júní, því að svo er bæði talið í Censúrprotokolli Bessa-
staÖaskóla og svo telur hann sjálfur í z’ita 1844, en kirkju-
bókin hafði ekki enn borizt mér i hendur, þegar eg samdi
æfiminninguna. En samkvæmt kirkjubókinni er hann skírS-
ur 6. júní (af síra Sæmundi Holm), og það mun í upphafi
hafa gefið, af ónógri aðgæzlu, efni til rangs skirnarvott-
orðs. Stendur á svo sem engu. Eg tek eptir þvi, að kirkju-
bókin telur Jarþrúði gömlu Jónsdóttur, Bogakonu, ljós-
móður hans, og annar skírnarvotturinn er Oddur læknir
Hjaltalín, og verður það skiljanlegt af því, er síðar mun
sagt verða.