Eimreiðin - 01.01.1937, Blaðsíða 126
112
FRÁ LANDAMÆRUNUM
EIMREIÐIN
minn virtist starfa alveg utan viö
likamann, og með honum skynjaði
ég bæði líkama sjálfs min, ]>ar sem
liann lá í rúminu, og alt umhverfið
bæði í liúsinu og garðinum fvrir utan.
Ennfremur skjnjaði ég j'mislegt
víðsvegar um Skotlancl og í London,
yfir liöfuð að tala alt, sem athj'gli
mín beindist að. Ég fann að ég var
óháður tíma og rúmi, að liugur
minn starfaði ekki lengur i þrem
viddum þessa heirns, heldur fjórum
eða fleiri. Ég get ekki iýst ástandi
mínu með orðum. í einhverjum
orkuþrungnum lífsflaumi sveif ég
um víddir tima og rúms, og ég skildi,
að lieilar manna eru einskonar
endastöðvar úr þriggja vídda veröld
inn í lifsflaum fjögurra og fimm vidda
tilveru. Þegar lifgunartilraunirnar
hófust, reyndi ég að strifast gegn
jivi, að þær tækjust, og var ákaflega
leiður yfir j>eim, af J>vi mér fanst
þetta nýja lif mitt svo furðulegt, og
af því ég var rétt að byrja að skilja,
hvar ég var og livað fyrir augun
bar. Ég kom aftur í líkamann hæði
hryggur og reiður yfir ]>vi að fá
ekki að vera i friði, og um leið og
likamsvitundin vaknaði, livarf alt,
en j>jáningin kom í staðinn«.
Sir Aukland Geddes gcrði í erindi
sinu nokkra tilraun tilað skýraýmis-
legt í skýrsiunni út frá sálkönnunar-
kcnningum j>eirra Freuds og Jungs,
en tók það jafnframt fram, að þeirra
skýringar væri fjarri j>vi að vera
fullnægjandi. Fjarhrif, skygni og
önnur skyld fyrirbrigði, sem virðast
gerast að meira og minna leyti utan
við likamann, eru sama eðlis og
reynsla hins deyjandi manns, sem
skýrslan segir frá, og vitnar um þá
undraverðu möguleika, sem manns-
andinn býr yfir.
Kirkjan og ódauðleikasannan-
irnar. Enska kirkjan virðist ætla að
verða á undan systurkirkjum sinum
á Norðurlöndum (að islenzku kirkj-
unni undanskilinni) með að viður-
kenna mikiivægi sálarrannsóknanna
og þýðingu jieirra til stuðnings trú-
arsannindum kristindómsins. Ný-
lega hefur erkibiskupinn af York
látið svo um mælt, að timi sé kominn
til að kirkjunnar menn gefi Jiessum
rannsóknum fylsta gaum, og eftir
því sem blaðamaðurinn og leikdóm-
arinn Hannen Swaffer segir, hafa
um 200 prestar í Bretlandi lj'st sig
eindregið fylgjandi samstarfi milli
kirkjunnar og sálarrannsókna-
manna.
Á Lambeth-ldrkjuþinginu árið
1920 var kosin nefnd til að kynna
sér árangur sálarrannsóknanna. Nið-
urstaða ]>eirrar nefndar var þessi:
»Það er liklegt að vér stöndum nú
á þröskuldi nýrra visinda, sem muni
staðfesta með annari aðferð en áður,
að til séu lieimar utan og ofan við
skynheim vorn og opinbera eitthvað
j>að í sjálfum oss, sem tengi oss
þeim. Vér munum aldrei leggja til
að tefja árangur nokkurra þeirra
starfsaðferða, sem guð kann að nota
til að leiða mennina til skilnings
á andlegu lífi«. Opinberlega hefur
enska kirkjan síðan ekki tekið á-
kveðnari afstöðu í jressu máli, en
margir prestar hennar eru mjög
kunnir sálarrannsóknamenn t. d-
G. Mauriee Elliott, C. I„ Tweedale
og G. Vale Owen, sem sagði af sér
prestsembætti sinu í Lancashire,
vegna þeirrar andúðar, er liann
mætti frá biskupi sínum fyrir
þátttöku sina í Jiessum rannsókn-
um og fvrir prédiltun sína um
þær.