Uppeldi og menntun - 01.01.1999, Page 126

Uppeldi og menntun - 01.01.1999, Page 126
TÖLVUMENNING ÍSLEN5KRA SKÓLA skólunum. Svör bárust frá fjórum skólum. Áður en rannsóknin hófst fengu foreldrar nemendanna bréf þar sem rannsóknin var kynnt og óskað eftir þátttöku nemenda. Greining gagna Gögn voru greind eftir kyni, aldri og skóla og kí-kvaðrat próf gerð til að finna marktækan mun í dreifingu svara (Alma Frímannsdóttir og Margrét Sigurvinsdótt- ir). Einnig voru gerð fylgnipróf og fervikagreining og skoðaður sérstaklega kynja- munur í tölvunotkun innan hvers skóla (Sólveig Jakobsdóttir). Helstu niðurstöður Hér verður eingöngu greint frá helstu niðurstöðum sem tengdust færni, viðhorfum og tölvunotkun nemenda heima og í skóla. Þá verður getið þátta sem skýrt gætu kynjamun sem fram kom í áðurtöldum atriðum og að lokum er greint frá muni sem kom fram milli tveggja skóla. Sjálfmetin færni og viðhorf. Piltar merktu að staðaldri við fleiri færniatriði en stúlkur,3 r(195)=0,183, p<0,05. Nánar tiltekið voru 22% stúlkna sem töldu sig kunna 0-4 atriði, 41% 5-8 atriði en einungis 37% 9-13 atriði. Samsvarandi prósentur hjá piltum voru hins vegar 16%, 20% og 64%, y2=15,3, df=2, p<0,05. Einnig kom fram meiri tilhneiging hjá piltum en stúlkum að telja sig mjög klára að nota tölvur á marga mismunandi vegu (r(195)=0,279, p<0,05), að telja tölvur mikilvægar fyrir framtíðina (r(193)=0,173, p<0,001) og að telja tölvur nauðsynleg tæki í námi og starfi (r(195)=0,197, p<0,01). Á hinn bóginn var ekki marktæk fylgni milli kyns og þess hvort nemendum fyndist spennandi að nota tölvur, væri illa við að nota þær, þætti gaman að prófa nýja hluti, fyndist gaman að nota tölvur til gagnlegra hluta, eða liði óþægilega fyrst þegar þeir notuðu tölvur eða hugbúnað sem þeir hefðu ekki notað áður. I ljós kom þó að stúlkur með slaka námsgetu4 virtust hafa minni áhuga á að nota tölvur og vera verr við að nota þær heldur en stúlkum með góða námsgetu, en það gagn- stæða gilti um piltana. í fyrra tilvikinu voru meðaltöl stúlknanna frá „getumeiri" einstaklingum til „getuminni" 3,8, 3,6 og 2,85 en sambærileg meðaltöl drengja voru 3,1, 4,2 og 3,8 (F=4,99, p<0,01). í síðara tilvikinu voru meðaltöl stúlknanna frá „getumeiri" einstaklingum til „getuminni" 4,3, 4,4 og 2,6 en sambærileg meðaltöl drengja voru 3,6, 4,4 og 4,5 (F=8,28, p<0,001). Ýmsir þættir sem gætu skýrt kynjamun í færni og viðhorfum. Ekki var marktæk fylgni milli kyns og þess hversu margar tegundir forrita nemendur höfðu notað í skólanum né þess hversu oft nemendur sögðust nota tölvur í skólanum. Á hinn bóginn var marktæk fylgni milli kyns og fjölmargra atriða sem tengdust notkun utan skóla. Til dæmis virtust piltar hafa notað fleiri tegundir forrita heima (r(195)= 0,231, p<0,005) en stúlkur. Einnig voru þeir líklegri en stúlkur til að segjast oft nota tölvur utan skólans (r(193)=0,318, p<0,001). Það sama gilti um vef (r(192)=0,197, 3 Þretlán atriði á lista, t.d. setja forrit inn í tölvu, búa til vefsíðu, búa til mynd í tölvu. 4 Skv. flokkun nemenda sjálfra hvort einkunnir þeirra væru oftast á bilinu 8-10,6-8, eða <6. 5 Hærri tölur gefa til kynna að nemendur væru fremur sammála þeirri staðhæfingu að þeim fyndist mjög spennandi að nota tölvur. 124
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.