Uppeldi og menntun - 01.01.1999, Page 164

Uppeldi og menntun - 01.01.1999, Page 164
SKÓUNN OG FÉLAGSLEGAR FRAMFARIR nú lifum þurfum ekki að fara nema eina, tvær eða í mesta lagi þrjár kynslóðir aftur til að vera stödd í tíma þegar heimilið og nágrenni þess var í raun sú miðstöð þar sem unnin voru öll helstu iðnaðarstörfin. Fötin sem fólkið klæddist voru að mestu leyti búin til á heimilinu; heimilisfólkið hafði líka venjulega náin kynni af rúningu kindanna, kembingu og spuna ullarinnar og notkun vefstólsins. í stað þess að ýta á hnapp og fylla húsið með rafljósi var fylgst með gerð ljósfæranna á hinni löngu og erfiðu leið frá því að skepnan var felld og fitan brædd til þess er kveikir voru snúnir og kertin steypt. Mjöls, timburs, matvæla, byggingarefna, húsgagna, jafnvel málm- vöru, nagla, hjara, hamra o.s.frv. var aflað í næsta nágrenni, á verkstæðum sem voru stöðugt opin til skoðunar og oft miðstöðvar fyrir samkomur fólksins í hverf- inu. Allt iðnaðarferlið var sýnilegt, frá framleiðslu hráefnarma á búinu þar til full- unnar vörur voru í raun og veru teknar í notkun. Og ekki nóg með það, heldur átti nánast allt heimilisfólkið sína hlutdeild í vinnunni. Börnunum voru smátt og smátt, eftir því sem þeim óx fiskur um hrygg, kynntir leyndardómar vinnubragðanna. Tengslin voru bein og persónuleg og leiddu jafnvel til virkrar þátttöku í vinnunni. Við getum ekki horft fram hjá þeim aga og skapgerðarmótun sem þetta líf fól í sér: þjálfun í reglusemi og iðjusemi og í ábyrgðarkennd, skyldu til að gera eitthvað, að búa eitthvað til. Það var alltaf eitthvað sem í raun og veru þurfti að gera og brýna nauðsyn bar til að hver heimilismaður sinnti sínum hlut af trúmennsku og í samvinnu við aðra. Menn sem urðu dugandi í starfi voru þjálfaðir og reyndir á vettvangi starfsins. Við getum heldur ekki horft fram hjá því hve mikilvæg voru í menntunarskyni hin nánu og persónulegu kynni af náttúrunni sem fengust milli- liðalaust af raunverulegum áhöldum og efnum, af raunverulegri beitingu þeirra, og þekkingin á hlutverki þeirra í samfélaginu. í öllu þessu fólst stöðug þjálfun í athugun, hugvitssemi, skapandi ímyndunarafli, rökhugsun og veruleikaskyni sem fékkst með beinni snertingu við raunverulega hluti. Hin menntandi áhrif frá spuna og vefnaði á heimilinu, sögunarmyllu, kornmyllu, verkstæði beykisins og járn- smiðjunni voru stöðugt að verki. Engin verkleg kennsla, í formi sýnikennslu, hversu mikil sem hún er, fer nærri því að koma í staðinn fyrir þau kynni við jurtir og dýr í sveitinni sem fást með því að lifa í raun og veru meðal þeirra og annast um þau. Engin þjálfun skynfæranna í skólanum, innleidd í þjálfunarskyni, kemst í námunda við að vera samkeppnisfær við þá snerpu og fyllingu skynjunar sem kemur með daglegum kynnum af algeng- um störfum og áhuga á þeim. Orðaminni er hægt að þjálfa með því að læra utan að sérstök verkefni, hægt er að öðlast vissa ögun í rökhugsun með námi í náttúrufræði og stærðfræði. En, þegar öll kurl koma til grafar, er þetta nokkuð fjarlægt og óraun- verulegt samanborið við þá þjálfun í athygli og dómgreind sem fæst með því að þurfa að vinna verk þar sem raunverulegur tilgangur býr að baki og raunverulegur árangur er fram undan. Nú hafa samþjöppun iðnaðar annars vegar og verkaskipt- ing hins vegar nánast útrýmt heimilis- og hverfastörfum - alltént sem menntandi áhrifavöldum. En það gagnar ekkert að harma það að góðu gömlu dagarnir þegar börn voru hógvær, lotningarfull og hlýðin eru horfnir, ef við væntum þess að geta fengið þá aftur með harmakveinum einum og áminningum. Það eru grundvallarað- stæður sem hafa breyst og ekkert dugar nema jafn róttækar breytingar á sviði skóla- 162
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.