Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Qupperneq 60

Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Qupperneq 60
STEFNUR O G STRAUMAR í NÁTTÚRUFRÆÐIMENNTUN Þeir segja „í þessari skýrslu eru settar fram hugmyndir og starfsrammi sem við vonum að ný og viðeigandi námskrá geti sprottið úr" (bls.l). Um 30 manns sóttu fundina og störfuðu langflestir við náttúrufræðimenntun á grunn- og framhalds- skólastigi frekar en við náttúruvísindi á háskólastigi. Á síðastliðnum fjórum áratugum hefur orðið til fræðigrein sem við köllum nátt- úrufræðimenntun (sjá t.d. Gilbert 1995). Gefinn er út fjöldi fag- og fræðitímarita sem fjalla eingöngu um málefni náttúrufræðimenntunar og starfsfólk sem tilheyrir þessum faghópi starfar við kennslu, sem kennsluráðgjafar, við kennaramenntun, við námskrárgerð, við rannsóknir á námi og kennslu, og hefur sem hópur mjög fjöl- breytta grunn- og framhaldsmenntun. Tilgangurinn með þessari grein er að vekja athygli á stöðu náttúrufræðimennt- unar bæði erlendis og hér heima fyrir. Við stöndum á tímamótum og þá er gott að staldra við og skoða landslagið. Hér á eftir ætla ég að fara yfir hugmyndir um náttúrufræðikennslu sem hafa verið ofarlega á baugi seinni hluta aldarinnar. Því næst verða athugaðar rannsóknir á að hve miklu leyti þær hugmyndir hafa skilað sér í kennslu. Að lokum ætla ég að skoða nokkur einkenni náttúrufræðinámskrár grunnskóla hérlendis og velta því fyrir mér hvar við stöndum. HUGMYNDIR UM NÁTTÚRUFRÆÐIKENNSLU Aðaláherslur og tilgangur náttúrufræðináms á sjötta og sjöunda áratugnum tengdust oftast stöðu náttúrufræðinnar sem vísindagreinar (Fensham 1992). Vísindamenn unnu hörðum höndum að því að skilgreina innihald námsins og jafnvel skrifa kennsluefni og megináherslan var lögð á að námsaðferðir ættu að vera eins líkar alvöru vísindum og hægt væri. Lokamarkmiðið var að tryggja að nógu margir duglegir nemendur veldu vísindagreinar á háskólastigi, og þar með jafnframt tryggja áframhaldandi hagvöxt. Varðandi kennsluleiðir var stuðst við hugmyndir sem rekja má til Piaget, Schwab, Gagné og Bruner - að skapa rétt umhverfi, að láta börnin vinna á vísindalegan hátt, að skipta verkefnum niður eftir ítarlegum mark- miðum. Eðli og hlutverk náttúruvísinda urðu ekki skilin frá vinnubrögðum og færni; skilningur á því fyrra fólst einfaldlega í því að nota hið síðara á markvissan hátt (Schwab 1962). En smám saman kom babb í bátinn - æ fleiri nemendur, líka yngri nemendur og þeir sem höfðu minni námsgetu, voru komnir í náttúrufræðinám. Það var ekki alveg ljóst hvað yngri nemendur ættu að læra né hvers vegna, en þróunin varð sú að áhersla var lögð á vísindaleg vinnubrögð og vinnufærni (processes of science) á yngra stiginu en eldri nemendur fengu að glíma við grunnatriði og innihald hefð- bundinna vísindagreina (Fensham 1992). Námsárangur og viðhorfsbreytingar voru metin með hliðsjón af þróun nám- skrár og námsefnisgerðar. í ljós kom að þróunaráætlanir höfðu ekki staðist í öllum atriðum. Matsaðferðirnar mældu næstum því eingöngu útkomu. Þróunarlíkönin voru mjög einföld: að dæla inn nýju námsefni og mæla útkomuna. Áhugi nemenda var oftast fyrir hendi en skilningi þeirra á grunnhugtökum var stundum ábótavant, þó hann væri betri en með hefðbundnu námsefni (t.d. Shymansky, Hedges og 58
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164
Qupperneq 165
Qupperneq 166
Qupperneq 167
Qupperneq 168
Qupperneq 169
Qupperneq 170
Qupperneq 171
Qupperneq 172
Qupperneq 173
Qupperneq 174
Qupperneq 175
Qupperneq 176
Qupperneq 177
Qupperneq 178
Qupperneq 179
Qupperneq 180
Qupperneq 181
Qupperneq 182
Qupperneq 183
Qupperneq 184

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.