Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Page 86

Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Page 86
TÍU ÁRA BÖRN STANDA VEL AÐ VÍGI anburði við hin löndin (Schultz Jörgensen o.fl. 1998, 213 ). Það að barn sé jákvætt í garð skólans annars vegar og hagi sér vel þar að mati kennarans hins vegar fer ekki endilega saman. Hér kann að vera áhugaverður munur á skólabrag og menningu milli landa. Fleira verður ekki tíundað hér um samanburð almennra niðurstaðna, þó að ýmislegt annað veki áhuga. Þetta á t.d. við um samanburð á aðstæðum fjölskyldn- anna og hvernig þær tengjast mati á færniþáttum.7 Jákvæð útkoma meðal meginþorra barnanna beinir ekki athyglinni frá því sem íþyngir börnum. Hér er þó ekki rúm til að fjalla um þau börn sem virðast eiga við sérstök vandamál að stríða. Eitt atriði þessu skylt sem nær til heildarhópsins var tekið til sérstakrar athugunar en það voru áhyggjur íslensku barnanna og hvernig þau sögðust leysa vandamál. Næst verður skýrt frá þessari athugun. ÁHYGGJUR OG LAUSNIR BARNA Hugtakið áhyggjur vísar til neikvæðra hugsana eða ógnunar sem einstaklingnum virðist aðsteðjandi, hann ímyndar sér hættuleg atvik og neikvæðar afleiðingar, jafn- framt því sem hann reynir að finna leiðir til koma í veg fyrir hættu. Ahyggjur draga úr getu einstaklingsins til að vinna úr tilfinningum og hafa neikvæð áhrif á geðslag og persónulegt ástand. Áhyggjur hafa því þýðingu fyrir þroska barna og athafnir. Trúlega álíta flestir fullorðnir að þeim beri að leitast við að létta sem mest af börn- um álagi sem rekja má til stöðugra og mikilla áhyggna. Áhyggjur barna hafa ekki verið rannsakaðar mikið og nýjar rannsóknir sem snúa beinlínis að þeim eru fáar. Silverman, la Greca og Wasserstein (1995) athuguðu bæði tíðni og styrk áhyggna og komust að raun um að flestar áhyggjur bandarískra barna sem þeir rannsökuðu sneru að skóla, heilsufari og persónulegum áföllum. I rannsókn Simon og Ward frá 1974, sem náði til yngri og eldri grunnskólabama, tengdust flestar áhyggjur bamanna fjölskyldu, tengslum við annað fólk og sambandi við skólann en fátíðast var að áhyggjurnar sneru að dýrum, fjárhag og heilsufari. í báðum rannsókn- um var byggt á svörum bamanna og virtust stúlkur hafa meiri áhyggjur en drengir. Eina atriðið þar sem fram kom aldurstengdur munur í rannsókn Simon og Ward var að yngri börnin höfðu bæði tíðari og meiri áhyggjur af fjármálum og skólagöngu en börn á unglingastiginu. Gmnnskólabömin virtust hafa meiri áhyggjur en framhalds- skólanemamir sem rannsóknin náði einnig til. í þessum rannsóknum var samband áhyggna og annarra aðstæðna barna ekki til athugunar. í finnska og íslenska hlutanum af norrænu rannsókninni var spurt um áhyggjur barnanna sjálfra. Þessi athugun var einn þeirra „útúrdúra" sem rannsóknarhópur- inn ákvað frá upphafi að veita svigrúm til, allt eftir áherslum hvers lands. Val þessa viðfangsefnis byggði á áhuga á því að athuga sérstaklega svör barnanna um þætti í daglegu lífi. Þó að samanburðarrannsókn okkar sé fjölþætt er hún yfirlitskönnun. Hún gefur af sér fjölmargar niðurstöður um færniþætti og aðstæður tíu ára barna og fjölskyldna en eðli málsins samkvæmt verður það á kostnað dýptar. Því var 7 Um hið fyrrgreinda sjá Kristofersen 1998 , um hið síðarnefnda Guðrúnu Kristinsdóttur 1998. 84
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.