Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Page 117

Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Page 117
GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR meira skipulag og skýrari umgjörð. Því þarf að skapa öryggi í umhverfi þeirra með ákveðnum reglum þannig að börnin hafi möguleika á að þekkja persónur, staði, athafnaraðir og fyrirbæri í umhverfinu og öðlast þannig öryggi (Knill 1990, Vinter- hoj 1978, Vilhelmsen 1992). Aðferðin „skipulögð boðskipti" felur í sér að notað er svokallað „dagskipulag" til þess að skapa umgjörð fyrir hvern dag vikunnar. Not- aðir eru kassar, töflur eða pokar sem í er settur ákveðinn hlutur sem tákn fyrir það sem á að fara að gera hverju sinni, t.d. skeið fyrir að borða, bolli fyrir að drekka o.s.frv. Barnið fær hlutinn í hendurnar og því er sagt með táknum og/eða orðum hvað er í vændum og það síðan látið endurtaka sjálft það sem sagt var. Jafnframt er lögð mikil áhersla á að merkja og skipuleggja umhverfi barnsins í því skyni að auka öryggi þess og gera því kleift að þekkja nánasta umhverfi. Aðferðin er enn mikið notuð þótt margir hafi gagnrýnt hana á síðari árum. Sú gagnrýni snýst um að börn- unum sé stýrt of mikið, skipulagið sé of stíft, gefi ekki rúm fyrir nýjar upplifanir og laði ekki fram frumkvæði og sjálfstæði barnsins. Afleiðing þess er talin verða sú að börnin skorti frumkvæði og þau loki sig af frá umhverfinu (Jacobsen 1992). Á allra síðustu árum hefur umræðan því snúist um að kafa þurfi enn dýpra og skoða í nýju ljósi forsendur þess að mikið fötluð börn eigi árangursríkt samspil við mótaðila sína frá upphafi (Nafstad og Rodbroe 1998). Með bakgrunn í rannsóknum á fyrstu tengslamyndun móður og barns hefur hópur norræns fagfólks, þar með tal- ið frá Islandi, unnið að gerð athugunarlíkans sem gengur undir heitinu „þroskapró- fíllinn" („utviklingsprofilen"). Þessi vinna hefur farið fram á vegum norræns fræða- seturs „Nordisk Uddanelsescenter for Dovblindepersonale" sem norræna ráðherra- nefndin rekur. Stjórn verkefnisins er í höndum Önnu Nafstad frá Noregi og Inger Röbroe frá Danmörku. í rannsókninni sem hér er lýst var alfarið stuðst við lýsingar þeirra á prófílnum. Fyrirlögn þroskaprófílsins og fyrirgjöf hefur ekki verið stöðluð enda er frekar litið á hann sem athugunarlíkan en þroskapróf (Nafstad 1996). Pró- fíllinn er ætlaður til greiningar á tengslum barnsins við umhverfi sitt og mótaðila sína. Hann hefur hingað til aðallega verið notaður við athuganir á boðskiptum daufblindra en í þeirri rannsókn sem hér er lýst er hann notaður til viðmiðunar í mati á boðskiptum þeirra barna sem þátt tóku í rannsókninni. Hvað eru boðskipti? Fram á sjöunda áratug þessarar aldar var algengt að halda því fram að nýfætt barn væri óvirkt og ekki fært um að taka þátt í samspili við aðra manneskju. Það sýndi aðeins ósjálfráð viðbrögð og upplifði veröldina sem ruglingslega og brotakennda. Mikilvægi boðskipta fyrir þroska barnsins var ekki gefinn gaumur fyrr en barnið fór sjálft að nota einföld merkjaorð um það leyti sem það varð eins árs. Alþjóðlegar rannsóknir hafa hins vegar gjörbreytt ríkjandi viðhorfum til getu ungbarna. Fræði- menn fóru að átta sig á að boðskiptaferlið hjá svo ungum börnum er sérstakur þátt- ur í þroska þeirra. Rannsóknir hafa leitt í ljós að ungbarnið hefur eðlislæga tilhneig- ingu til að leita sambands við annað fólk. Allt frá fyrstu stundu er ungbarnið reiðu- búið að hefja samspil við fullorðna sem í kringum það eru og líta má á barnið sem virkan mótaðila frá fæðingu (Ainsworth 1967,1973,1978, Bowlby 1969, 1973, Bates 1979,1980, Stern 1985,1991,1992). Þessar rannsóknir hafa m.a. breytt þeim viðhorf- 115
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.