Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Page 147
SIGURÐUR KRISTINSSON
KENNING OG STARF f STARFSMENNTUN
Skólar og námsbrautir setja sér stundum það markmið að búa nemendur undir starf á til-
teknum vettvangi. Þegar þetta er meginmarkmiðið með skipulagi tiáms og kennslu má scgja
að stefnt séað starfsmenntun í tilteknu fagi fremur en almennri menntun. Jafnframt verður
hlutur verklegrar þjálfunar gjarnan meiri, enda er stefnt að því að nemendur læri til verka
á tilteknu sviði atvinnulífs.
í þessari grein verður leitað svara við því hvaða grundvallarsjónarmið tnegi hafa til
hliðsjónar þegar lagt er mat á tengsl kenningar og starfs í starfsgreinanámi. í þessu skyni
verður fyrst hugað að merkingu hugtaksins starfsmenntun og tengslum hennar við al-
metma menntun. Hugtakið starfsmenntun verður ekki skoðað í sögulegu Ijósi, heldur frá
„tímalausu", heimspekilegu sjónarhorni, ef svo mætti segja, tneðal atmars með þeirri
gamalreyndu aðferð að endurbæta tilraunir til skilgreiningar í Ijósi gagndæma. Athyglinni
verður einnig beint að fagmennskuhugtakinu, en í Ijósi þess verða færð rök fyrir því að
bóklegur lærdótnur í starfsgreinanámi þjóni tneðal annars þeitn tilgangi að efla siðferðilega
dómgreind og vega upp á móti þröngri tæknihugsun.1
HVAÐ ER STARFSMENNTUN?
Hugtakið starfsmenntun mætti e.t.v. skilgreina á eftirfarandi hátt.
(i) Starfsmenntun er það sem nemendur læra á námsbrautum sem veita
starfsréttindi.
Þessi skilgreining er gölluð ef hægt er að finna sannfærandi gagndæmi við hana.
Með gagndæmi er átt við dæmi sem leiðir í ljós misræmi á milli skilgreiningar og
þess sem reynt er að skilgreina. Gagndæmi geta verið tvenns konar. Annars vegar
eru dæmi um hlut eða fyrirbæri sem fellur ekki undir skilgreininguna en virðist
engu að síður (að athuguðu máli og af dómbærum aðilum) vera af þeirri tegund
sem ætlunin var að skilgreina. Ef hugtakið bíll, svo dæmi sé tekið, er skilgreint sem
bensínknúið farartæki er nóg að benda á díselbíl og þar er komið gagndæmi. Hins
vegar eru dæmi um hlut eða fyrirbæri sem fellur undir skilgreininguna en virðist
engu að síður (að athuguðu máli og af dómbærum aðilum) ekki vera af þeirri teg-
und sem ætlunin var að skilgreina. T.d. ef hugtakið bíll er skilgreint sem bensín-
knúið farartæki er nóg að benda á bensínknúið bifhjól og þar er komið gagndæmi.
Gagndæmi við skilgreiningu (i) á starfsmenntun gæti verið nemandi sem fer í
gegnum námsbraut sem veitir starfsréttindi, en stundar námið illa og lærir nánast
1 Þessi grein er að stofni til fyrirlestur sem höfundurinn flutti á starfsdegi Kennaraháskóla Islands á Laugarvatni
20. október 2000.
Uppeldi og menntun - Tímarit Kennaraháskóla íslands 9. árg. 2000
145