Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Page 153

Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Page 153
SIGURÐUR KRISTINSSON Fagmennska, „professionalism", er oftast talin tengjast því þegar starfsgrein býr yfir verulegri hæfni og þekkingu á tilteknu sviði, nýtir hana til að sinna þörfu hlut- verki í samfélaginu og hefur einnig sjálfræði um ýmislegt sem lýtur að starfinu, svo sem um markmið þess, leiðir að settum markmiðum og val skjólstæðinga. Fag hefur einnig stjóm á því hverjir hljóta leyfi í nafni samfélagsins alls til að stunda viðkom- andi starfsgrein.8 Skipulag starfsgreinamenntunar er einmitt stór liður í þeirri stjórn. Af þessari grófu lýsingu má ráða að ekki séu allar starfsgreinar fög (profession). Augljósustu dæmin um störf sem ekki eru fög eru þau störf sem enga fagmenntun þarf til, þ. e. störf sem talið er eðlilegt að ófaglærðir stundi og enginn sérstakur lær- dómur er skipulagður til undirbúnings. Þetta þurfa alls ekki að vera störf sem hver sem er gæti unnið. Að vera háseti eða afgreiðslumaður í tískuverslun krefst færni og kunnáttu, þó svo að ekki sé krafist skipulegs starfsnáms og skírteinis. Aðrar starfsgreinar krefjast sérstaks fagnáms, þar sem reynt er að tryggja tiltekna hæfni og þekkingu, en þó án þess að samfélagið veiti starfsgreininni það sjálfræði sem ein- kennir svonefndar fagstéttir. Hér mætti nefna ýmsar iðngreinar sem dæmi. Sumar aðrar starfsgreinar krefjast gífurlegs lærdóms, þjálfunar og erfiðis ef árangur á að nást, án þess að vera ótvírætt álitnar fagstéttir. Skáld og heimspekingar eru e.t.v. dæmi um þetta. Samfélagið felur ekki samtökum þessara greina að skera úr um það hverjir skuli fá leyfi til að yrkja eða stunda heimspeki og bjóða svo almenningi upp á árangurinn. En það fær ekki hver sem er leyfi samfélagsins til að bjóða upp á barnakennslu, sálfræðiaðstoð, eða lyflækningar. Munurinn liggur að einhverju leyti í því að meira er í húfi. Fúsk í skáldskap og heimspeki er hvimleitt, en veldur lík- lega ekki stórskaða á borð við þann sem hlýst af fúski við barnakennslu, sálfræði- ráðgjöf, eða lyflækningar. George Bernard Shaw skrifaði eitt sinn að fagstéttir væru „samsæri gegn leik- mönnum."9 Með því vekur hann máls á grundvallarspurningu um tilverurétt fag- stétta. Hvernig þurfa fagstéttir að halda á málum til að eiga skilið þá viðurkenningu og það vald sem samfélagið færir þeim? Þarna er komið inn á svið siðferðis og gildismats. Fagstétt nýtur trausts og viðurkenningar í krafti sérþekkingar og sér- hæfðs hlutverks sem ekki er mögulegt að inna af hendi án sérþekkingar. Þegar sér- þekking og þjálfun hefur orðið til á samfélagið ekki annarra kosta völ en að treysta dómum þeirra sem hafa þekkinguna um það að hverju beri að stefna, hvernig æski- legt sé að standa að starfsmenntun, hvaða kröfur og skilyrði skuli gera þegar starfs- leyfi er veitt o.s.frv. Fagstéttin verður þannig dómari um eigin mál og samfélagið treystir því að hún beiti þessu sjálfræðisvaldi þannig að hlutverki hennar verði sinnt á sem allra bestan hátt. Þessu trausti brugðust þeir læknar nasistatímans sem stunduðu sársaukafullar og banvænar tilraunir á mönnum. Þessu trausti er líka hægt að bregðast í smærri stíl og ekki eins augljósum. Nægir þar að nefna að læknir kann að mæla með ónauðsynlegri meðferð sem hann hagnast á, eða hafa að engu ígrundaðar óskir sjúklings um eigin meðferð. Þessar hugleiðingar leiða í ljós að þeir hæfileikar sem eiginleg starfsmenntun 8 Sjá t.d. Andrew Jameton, Nursing Practicc: The Ethical Issues. Prentice Hall 1984 s. 18-34. 9 George Bernard Shaw, The Doctor's Dilemma, 1906,1. þáttur. 151 L
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.