Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Blaðsíða 139
137
brautarfélög. Veita fartækjaeigendur stúdentum mjög ríflegan afslátt
á vissum leiðum, en auk þess hafa samtökin gengizt fyrir ódýr-
um hópferðum og skipulagt ferðalög til sumarskóla og sumarbúða
stúdenta.
Enn hefur ekki tekizt að fá veittan afslátt hjá íslenzkum aðilum,
en ekki er loku fyrir það skotið, að svo verði, þótt of snemmt sé að
fullyrða nokkuð um það atriði.
Þá hefur ferðaþjónustan aflað sér réttinda hjá ISC-COSEC til þess
að selja hér heima alþjóðleg stúdentaskírteini, en gegn framvísun
þeirra njóta stúdentar alls konar fríðinda, svo sem réttar til að fá
afslátt af fargjöldum, gista á stúdentaheimilum, snæða í stúdenta-
mötuneytum o. s. frv. í þessum löndum: Danmörku, Noregi, Svíþjóð,
Finnlandi, Skotlandi, Englandi, Vestur-Þýzkalandi, Póllandi, Hollandi,
Belgíu, Luxemborg, Frakklandi, Spáni, Portúgal, Sviss, Italíu, Austur-
ríki, Júgóslavíu, Grikklandi, Tyrklandi, ísrael, Möltu, Alsír, Kanarí-
eyjum og Bandaríkjum Norður-Ameríku.
Á annað hundrað íslenzkra stúdenta og annars skólafólks naut á
einn eða annan hátt fyrirgreiðslu ferðaþjónustu stúdenta á síðasta
starfstímabili. Var hún af ýmsu tagi. Margir þurftu á alls konar
upplýsingum að halda erlendis frá, aðrir létu ferðaþjónustuna annast
útvegun hótelherbergja etc., en langflestir ferðuðust að meira eða
minna leyti á vegum S.S.T.S. Hópferðir voru skipulagðar í samvinnu
við S.S.T.S., og ferðuðust t. d. Laugarvatnsstúdentar frá síðasta vori
á vegum samtakanna. Samstarfið við S.S.T.S. var hið bezta, enda
eiga samtökin fjölmennu og þjálfuðu starfsliði á að skipa.
Þá barst ferðaþjónustunni fjöldinn allur af fyrirspurnum erlendis
frá, og var reynt að greiða úr þeim eftir föngum.
Starfsemi ferðaþjónustunnar hefur gefið hina beztu raun hingað
til og sjálfsagt að efla hana. Brýnasta verkefnið er að reyna að fá
innlenda aðila, og eru þá flugfélögin helzt höfð í huga, til þess að
veita stúdentum nokkurn afslátt á fargjöldum til útlanda, einkum
eftir hina gífurlegu farmiðahækkun í sumar, sem dró töluvert úr
utanförum stúdenta.
V. Heimsmeistaramót stúdenta í skák.
V. heimsmeistaramót stúdenta í skák var haldið í Varna í Búlgaríu
s. 1. sumar. Stúdentaráð ákvað að taka þátt í því móti. Var leitað til
allmargra aðila um fjárhagslegan styrk til þátttökunnar og stuðluðu
eftirtaldir aðilar að ferðalagi hinnar íslenzku skáksveitar: Mennta-
málaráðuneytið lagði fram kr. 7.500,00, Reykjavíkurbær kr. 7.500,00,
Háskólaráð kr. 5.000,00, blöð og útvarp kr. 6.000,00, Skáksamband
íslands kr. 3.000,00 og Taflfélag Reykjavíkur kr. 1.500,00.
18