Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Side 141
139
bók stúdenta. Síðasta handbók kom út á árinu 1947 og er löngu
uppseld og auk þess úrelt um margt. Hafizt var handa og Benedikt
Blöndal stud. jur. kosinn ritstjóri. Aðgerðum var þó frestað, þegar
ljóst varð, að reglugerð fyrir Háskóla íslands myndi innihalda ýmis
ákvæði um breytta námstilhögun í einstökum deildum. Reglugerð
þessi var gefin út s. 1. sumar og að áliðnu sumri var samþykkt í
stúdentaráði að hafizt skyldi handa á ný um útgáfu handbókarinnar.
Benedikt Blöndal gat ekki haldið áfram störfum ritstjóra, en í hans
stað kaus stúdentaráð laganemana Loga Guðbrandgson og Sigmund
Böðvarsson. Hafa þeir þegar tekið við að ganga frá bókinni. Ekki
er unnt að segja nákvæmlega fyrir um, hvenær bókin verður tilbúin,
en reynt verður að koma henni út á þessu misseri.
Utanríkismál.
1. Norrœn forma,7inaráðstefna. Dagana 7. og 8. febrúar komu for-
ystumenn stúdentasamtaka á Norðurlöndum saman til fundar í
Reykjavík. Formannaráðstefna þessi er, sem kunnugt er, haldin á
hverju ári og er þetta í fyrsta sinn, sem hún fer fram hér. Ráðstefnu
þessa sóttu tveir fulltrúar frá hverju Norðurlandanna, en sjö íslenzkir
stúdentar sátu fundi hennar. Forseti ráðstefnunnar var formaður
stúdentaráðs, Birgir ísl. Gunnarsson.
Alls dvöldust hinir erlendu gestir hér í tæpa viku. Skoðuðu þeir
það, sem markvert var að sjá hér í bænum og fóru auk þess í ferða-
lag um Suðurlandsundirlendi og var höfð næturgisting í Menntaskóla-
selinu.
Mál þau, sem rædd voru, skiptast í þrennt. í fyrsta lagi voru rædd
þau vandamál, sem stúdentar eiga við að stríða í hverju landi fyrir
sig. Var þá skipzt á upplýsingum um ýmisleg þýðingarmikil mál, t. d.
lána- og styrkjamál, húsnæðismál stúdenta, atvinnumál stúdenta og
ýmis fríðindi.
í öðru lagi svonefnd samnorræn mál. Þar var m. a. rætt um hin
norrænu málanámskeið og létu menn uppi óskir um það, að næsta
námskeið verði haldið í Reykjavík.
Að lokum var rætt um alþjóðamál stúdenta, t. d. afstöðuna til
COSEC og IUS, hinna tveggja alþjóðlegu stúdentasamtaka.
Engar ályktanir voru gerðar á ráðstefnu þessari, heldur einungis
skipzt á skoðunum um hin einstöku mál. Hinir norrænu gestir létu
mjög vel af dvölinni hér og lofuðu allan undirbúning og skipulagn-
ingu ráðstefnunnar.
2. Sænska stúdentaþingiö. S. 1. vor barst stúdentaráði boð frá
Sænska stúdentasambandinu (SFS) um að senda áheymarfulltrúa á
sænska stúdentaþingið, sem halda skyldi í Gautaborg dagana 19.—23.