Hugur - 01.01.1994, Page 33

Hugur - 01.01.1994, Page 33
HUGUR Aðferðafrœði í anda Rawls 31 Sjálfur hefur Rawls auðvitað ekki snúið baki við verkefninu og er það eitt af mörgum atriðum sem greinir hann frá þeim sem ég hef lýst sem fylgismönnum aðferðafræði í anda Rawlsý^ Þrátt fyrir þetta er óhætt að halda því fram að nánast enginn trúi því að honum hafi nokkurn tímann tekist að réttlæta réttlætishugmynd sem fullnægir fyrra skilyrðinu um stofnanaprófið, hvað þá síðara skilyrðinu um almennt samkomulag allra sanngjarnra manna. Svo gróflega sé dregin saman í eitt atriði mjög yfirgripsmikil gagnrýni má segja, að þrátt fyrir að Rawls trúi að rök hans fyrir réttlætis- hugmynd sinni (og þá alveg sérstaklega fyrir réttlætislögmálunum tveim og höfuðgæðum mannlífsins) ættu að sannfæra mikinn fjölda pólitískra andstæðinga hans, þá gera þau það ekki vegna þess að á nokkrum lykilstöðum „svindlar hann“ (óafvitandi, að sjálfsögðu). Margir sanngjarnir andstæðingar Rawls myndu ekki fallast á til dæmis grunnforsenduna fyrir rökfærslu hans í Kenningu um réttlœti — það er þá ígrundaðu dóma sem afmarka skilyrðin í upphafs- stöðunni. Meðal annars mótmæla þeir fjalldalareglunni um skyn- semi sem rök Rawls reiða sig svo mjög á (hann myndi ekki geta leitt mismunarlögmálið af upprunastöðunni án hennar), því sem virðist vera ofuráhersla á einstaklinginn þegar frum- eða höfuðgæði mannlífsins eru annars vegar, og loks mótmæla margir því hvernig upprunastaðan útilokar þau atriði sem byggjast á því að réttlæti felist í að fá það sem maður á skilið.48 Á síðari árum hefur Rawls 47 Það er efni í aðra ritgerð að gera þeirri spurningu full skil að hvaða marki Rawls sjálfur fylgir aöferöafrœöi í anda Rawls. Slík ritgerð myndi gefa kost 4 áhugaverðu sjónarhorni í Rawls-fræðunum sem ekki hefur verið fjallað um sem skyldi. Ástæðan er sú að líta má svo á að stór hluti af kjarnanum í forskriftarkenningu Rawls — allt frá fyrstu ritgerð hans árið 1951, til Kenningar um réltlœti og í þróun hugmyndarinnar um réttlæti sem sanngimi á síðustu tveimur áratugum — sé knúinn áfram af áhyggjum um viðeigandi aðferðafræði. Slík ritgerð myndi einnig gera okkur kleift að greina og meta styrkleika og takmörk aðferðarinnar með því að athuga hvert hún leiddi þann kenningasmið sem hefur verið sér hvað meðvitaðastur um að hann fylgdi henni og að hvaða marki jafnvel hann varð að fara skreft lengra en aðferðin leyftr. Ég geng þá út frá því að fylgni hans við Kant, stór hluti af hugmynd hans um pólitíska frjálslyndisstefnu og um hlutverk stjórnmálaheimspeki í lýðræðislegum samfélögum, gangi lengra en aðferðafræðin. 48 Áhrifaríkar útgáfur af þessari þríþættu gagnrýni má finna, í sömu röð, hjá: David Gauthier, Morals By Agreement (Oxford: Oxford University Press, 1986) og Moral Dealing: Contract, Ethics and Reason ', Thomas Nagel, „Rawls
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.