Hugur - 01.01.1994, Page 74

Hugur - 01.01.1994, Page 74
72 Þorsteinn Gylfason HUGUR haldið fram með því að höfða til samvizku manna og sektarkenndar, en ekki til viðurlaga.11 Og eins og hin siðfræðilega tvfhyggja er einn hornsteinn kenningakerfis Mills (ekki síður en Marx) — hann hafði numið hana af Hume sem heita má höfundur hennar — þá er reglingur athafnasiðfræðinnar einnig til hans sóttur. Mill segir í Nytjastefnunni: „Sá sem bjargar náunga sínum frá drukknun gerir rétt, hvort sem honum gengur skyldurækni til eða umbunarvon. Sá sem svíkur vin í tryggðum er sekur um glæp, jafnvel þótt honum gangi það til að styðja annan vin sem hann á meira gott að gjalda."12 Og loks er það þriðji hausinn og sá ófrýnilegasti. Með honum brýnir dofrinn fyrir okkur markvísi þeirrar mannlegu breytni sem siða- reglurnar kveða á um, hvort sem þeim er nú fylgt eða ekki. Samkvæmt þessari markhyggju miðar allt sem við gerum eða látum vera að einhverjum markmiðum, og á endanum að einu markmiði sem er ánægja okkar, vellíðan eða hamingja. Því eitthvert endanlegt markmið hljótum við að hafa: annars væri, eins og Aristóteles segir réttilega í upphafi Siðfrœði sinnar, „ekkert endanlegt svar við spurn- ingunni um markmið okkar svo að öll löngun yrði eftirsókn eftir vindi“. Og hann bætir við: „Ef eitthvert markmið okkar er slíkt að við viljum ná því einu sjálfs þess vegna og keppum að öllum öðrum vegna þessa eina markmiðs, þá blasir við að þetta eina væri hið eina góða og æðst gæða.“12 Samkvæmt nytjastefnunni er ánægjan einasta markmið manna sem þeir geta valið sjálfs þess vegna og einskis annars. Og Marx var sama sinnis í öllum höfuðatriðum. ^ Til marks um það er ástæðulaust að hafa hér taumlaust raus flestra þeirra sem telja sig fylgismenn hans um það sem þeir kalla „praxis“; það er svo skelfing leiðinlegt. Nær er að vísa aftur til bókar hans Þýzkrar heim- speki þar sem hann bregður upp sveimhyglissýn sinni á fagurt mannlíf í framtíðinni: „Þá geta allir gert það sem þá langar til,“ segir hann. „I dag geri ég eitt, á morgun annað. Fer á dýraveiðar í fyrramálið, í lax 11 Garðar Gíslason, „Um réttarreglur og siðferðisreglur“ i Úlfljóti XXIV, 4 (1971) s. 304 12 J.S. Mill, Utilitarianism (útg. M. Warnock, London: Fontana, 1962), s. 281. 13 Aristóteles, Ethica Nicomachea, 1094a. 14 Sbr. Eugene Kamenka, Marxism and Ethics (London og New York, 1969), s. 44-51.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.