Uppeldi og menntun - 01.01.2007, Blaðsíða 20
20
félaginu sagði: ,,Já, Steini, það er alltaf verið að stríða honum en hann er í hópnum en
samt alveg fyrir utan hann.“ Harpa talaði um að hver bekkur væri ein klíka og þeir
sem ekki væru þessir ,,týpísku“ eða „fittuðu“ ekki inn, þeir héldu sig sér í sínum hópi.
Þátttakendur töldu þannig að hópaskiptingin væri skýr og það skipti miklu máli fyrir
hvern og einn að tilheyra hópi. Þolendurnir töluðu gjarnan um að þeir sem væru í
félagslífinu ættu marga vini og litið væri upp til þeirra. Kári orðaði það þannig: ,,Ef
maður kemur, þú veist, eitthvað svona nálægt félagslífinu þá er maður alveg bara heil-
agur.“ Ein stúlkan sagði:
Sko, ef þú kemst inn í eitthvert félagslíf hérna eða kemst inn í einhverja
nefnd, þá ertu bara búin að eignast fimmtíu vini. Það er bara þannig, þá
vita allir hver þú ert … það vilja allir vera með þér.
Af orðræðu nemendanna má ráða að það að tilheyra hópi skiptir mjög miklu máli og
hver hópur hefur ákveðna stöðu í virðingarröð innan skólanna.
Afleiðingar eineltis
Í máli flestra þolenda kom fram að þeim leið mjög illa bæði meðan á eineltinu stóð
og eftir að því var lokið. Einnig höfðu þolendur komið sér upp eins konar varnarvið-
brögðum. Flest af því sem fram hefur komið í fyrri rannsóknum, allt frá streituein-
kennum til sjálfsmorðshugleiðinga, kom fram í viðtölunum (sjá t.d. Bond o.fl., 2001;
Craig, 1998; Forero o.fl., 1999; Kaltiala-Heino o.fl., 1999; Rigby, 1997, 2003). Eineltið
hafði einnig áþreifanlegar afleiðingar því þrjár stúlkur voru hættar í skólanum og ein
þeirra komin í annan skóla. Hinir þolendurnir höfðu einnig hugleitt að hætta í sínum
skólum þar sem eineltið hafði farið fram.
Áhrif á líðan og skólagöngu
Það kom mjög skýrt fram að hræðsla og óöryggi var einkennandi hjá flestum viðmæl-
endanna. Anna var sífellt hrædd um að verða aftur fyrir árás og eftir að hún varð fyrir
fyrstu árásinni leið henni ekki vel og hún sagði: ,,Síðan var ég … var ég alveg svo
rosalega stressuð alla vikuna.“ Harpa reyndi hins vegar að leita til ákveðinna aðila til
að fá öryggi í skólanum:
Með því að vera lögð í einelti hef ég lært það að ef þú vilt fá öryggi, vertu
hjá kennaranum. Ég hef verið kölluð kennarasleikja en mér er sama út af
því að kennarinn er sá eini sem getur veitt mér öryggi á meðan ég er í skól-
anum.
Áberandi var að sjálfsmynd þolenda var lituð af þeirri reynslu að hafa orðið fyrir ein-
elti. Ein stúlkan sagði:
Ég hef ekkert sjálfstraust. Mér líður alltaf mjög illa ef ég þarf að tala yfir
bekkinn og ef ég segi eitthvað svona í hópnum og það er kannski búið að
vera svona að segja einhverja brandara og ég segi einhvern brandara sem
er ekki fyndinn. Þá er búið að eyðileggja daginn fyrir mér, ef enginn myndi
hlæja.
,,HÆGIST MEIN ÞÁ UM ER RÆTT“