Morgunn - 01.06.1935, Qupperneq 58
52
MOEGUNN
því að hann telur fáa menn muni hafa meiri tilhneigingu
en einmitt þá, til að berja höfðinu við steininn.
Að vísu er það út af fyrir sig ekki neitt sérstakt und-
ur, að maður þessi skuli fá lækningu með undursamlegum
hætti; við höfum átt þess kost að heyra svo margar ein-
kennilegar frásagnir um slíka viðburði, frásagnir, sem eru
svo ramlega vottfestar, að ekki er unt að neita veruleika
þeirra. Nægir í því efni að minna á lækningaundur þau,
er gerast í Lourdes og í sambandi við ýmsa miðla víðs-
vegar um heim, en það eru starfshættir konu þessarar, er
oss hljóta að virðast nokkuð einkennilegir. En er vér les-
um 9. kap. Jóh. guðspjalls, þá sjáum vér, að meistarinn
frá Nazaret notar nokkuð einkennilega aðferð, er hann
læknar blinda manninn, og fróðir menn telja slíka aðferð
kunna frá þeim tímum og notaða við sviplíka sjúkdóma.
En þekking arabiska þjóðflokksins á hinum duldu lög-
málum tilverunnar virðast miklu fjölþættari. Saga sú, sem
hér fer á eftir, gefur lítið eftir sumu af því, er oss er
sagt að gerist meðal hinna indversku töframanna eða miðla.
Árið 1918 dvaldi arabiskur töframaður einn í Ain
Saffra héraðinu, er var frönsku stjórnarvöldunum töluvert
áhyggjuefni, því að frönsku stjórnarvöldin líta starfsemi
þeirra alt annað en vinaraugum, telja hana að ýmsu leyti
hættulega og varasama, og sennilega sprettur slík andúð
að einhverju leyti af því, að slikir menn hafi gert sig bera
að því, að misbeita slikri þekking. Trúboðsfélag eitt í Al-
gier, er nefnir sig hina hvitu feður eða hvitu bræður, er
þá fyrir skömmu höfðu hafið starf í Igli, skoraði á héraðs-
stjórann þar að láta fara fram nákvæma rannsókn á hæfi-
leikum þessa manns, sennilega í þeim tilgangi að afhjúpa
þennan töframann og gera hann uppvísan að svikum eða
blekkingum. Héraðsstjórinn varð við þeim tilmælum og tók
með sér tvo meðlimi úr stjórnardeildinni, þrjá Iiðsforingja
og fjóra presta úr trúboðsfélaginu. Rannsóknarnefndin hélt
nú af stað á fund töframannsins og hitti hann i tjaldi sínu
á bökkum Qued Dsira-árinnar. Með þeim voru ennfremur