Morgunn - 01.06.1935, Qupperneq 77
MORGUNN
71
■of heimskir liggur mér við að segja — til þess að þekkja
sinn vitjunartíma og hleypa hinu nýja, glampandi glaða
ljósi spiritisma og guðspeki inn i sínar hálfdimmu og
ömurlegu kirkjur! Og enn eru margir vísindamenn, sem
hafa alt of þröng heilabú til þess að þar rúmist annað en
það, sem allir eru orðnir nokkurnveginn sammála um, og
búið er að fá á sig stimpil viðurkendra vísinda. í raun
rjettri eru þessir menn alt of litlir vísindamenn til þess,
að eiginlega sé rétt að kenna þá við vísindi. Þeir eru
aðeins fræðimenn, eða þá i mesta lagi einhverjir útjaðra-
menn eða hornrekur í garði vísindanna. En þeir virðast
halda að hið litla horn þeirra sé garðurinn allur!
2. spurning. Hvað ber guðspeki og spiritisma sér-
staklega á milli?
Suar. Eg geri ráð fvrir, að það sé aðallega tvent, og
þó er það ef til vill meira á yfirborðinu en í raun og
veru. En guðspekingar gera að minsta kosti meira að því
■en spíritistar að vara við þeim hættum, sem sambandinu
við annan heim eru samfara, bæði hvað miðilinn sjálfan
og aðra snertir. Þeir telja miðilsstarfið hættulegt starf, nema
því aðeins, að um örugga og viturlega stjórn sé að ræða,
bæði hérnamegin og hinumegin. Þeir telja sérstaklega mikið
undir því komið, að miðillinn lifi heilbrigðu og hreinu lífi,
og vinni verk sitt fyrst og fremst sem fórnarstarf í þágu
góðs málefnis. Fyrir því telja þeir æskilegast, að miðillinn
sé fjárhagslega sjálfstæður maður, svo að enginn kaup-
menskuandi nái að grugga hinar hreinu lindir sannleiksleit-
arinnar. Þá halda þeir því fram, að þeir, sem lifandi eru
kallaðir, hafi oft — jafnvel oftast — mjög lítil tök á því
að verjast blekkingum að handan. Ýmsar þær verur, sem
á miðilsfundum gera vart við sig, segja þeir að séu ekki
framliðnir menn, heldur náttúruandar svokallaðir, er leiki
hlutverk framliðinna manna, geðræn lík, er þeir nefna svo
'°- s. frv. Þá halda þeir því og fram, að æskilegast sé, að