Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1996, Page 45
Frumlag ogfall að fornu
43
b Var honum draumur sá ekki mjög skapfelldur.
(Bárðar saga Snœfellsáss, s. 47)
c Honum varð laus öxin og féll hún niður.
(Bjarnar saga Hítdœlakappa, s. 101)
d En með því að þeim var lengra lífs auðið kom Þorkell þeim
á kjöl. (Þórðar saga hreðu, s. 2016)
e Henni var þá hinn fjórtándi vetur. (Þorgils saga skarða, s. 627)
(10) Aukafallsnafnliður með hjálparsögn + lo. í hk.:
a Henni verður þá kalt og kynlegt við.
(Þorsteins þáttur uxafóts, s. 2313)
b Kerling fær ekki sofnað um nóttina, svo var henni bimbult.
(Gisla saga Súrssonar, s. 871)
c Var honum orðið heitt. (Hávarðar saga Isfirðings, s. 1331)
d Og er hann kemur á bæinn gengur hann til baðstofu því að
honum var kalt orðið. (Svínfellinga saga, s. 556)
e En er hann kom af Leiruvogsá þá gerði honum kalt mjög og
stirðnaði hann. (Kjalnesinga saga, s. 1445)
f Sámur gengur heim til búðar sinnar og var þeim frændum
þungt í skapi (Hrafnkels saga Freysgoða, s. 1403)
(11) Þolmynd með aukafallsnafnliö:
a Þorvaldur spyr hver fyrir skipunum réði en honum var sagt
að Eyvindur Þórarinsson réð fyrir.
(Hrafns saga Sveinbjarnarsonar, s. 239)
b Konungur segir að það var illa orðið er honum var mein
gert. (Olafs saga helga, s. 510)
c Honum var þar vel fagnað.
(Bjarnar saga Hítdœlakappa, s. 82)
d Honum var kostur á boðinn hvað til gamans skyldi hafa,
sögur eða dans um kvöldið. (Þorgils saga skarða, s. 734)
e Honum var sagt að til væri saga Tómass erkibiskups
(Þorgils saga skarða, s. 734)
I umræðu um það hvaða liðir séu frumlög og hverjir ekki hafa verið
nýtt ýmis svokölluð frumlagspróf, sem byggjast einkum á því að