Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1996, Page 59
Frumlag ogfall að fornu
57
b Mönnum þótti mikil tíðindi um þessa ráðagerð
(Eiríks saga rauða, s. 522)
c Öllum þótti þetta hið mesta þrekvirki orðið af tólf vetra
gömlum manni. (Finnboga saga ramma, s. 631)
d Öllum þótti Skagfirðingar mikinn drengskap sýnt hafa
(Grettis saga Ásmundarsonar, s. 1067)
e Ábóta líkar illa ijárupptektin þótt sakir væru til
(Svínfellinga saga, s. 553)
I þessum dæmum er það greinilega þágufallsliðurinn sem hagar sér
eins og dæmigert frumlag; þarf ekki að vísa til einhvers sem áður er
nefnt. Nefnifallsliðurinn hagar sér aftur á móti eins og dæmigerður
kjarnafærður liður.
Orðaröð í aukasetningum er mun fastari en í aðalsetningum. Það er
miklu sjaldgæfara í aukasetningum en aðalsetningum að annar liður
en frumlag, t. d. andlagið, sé fært fremst; og í sumum tegundum auka-
setninga gengur slíkt alls ekki. „Virkni kjarnafærslu er mismunandi
bæði eftir tengingum aukasetninganna svo og merkingarflokkum
þeirra“ segir Friðrik Magnússon (1990:115-116) og bætir síðar við
(1990:116-117):
í setningum tengdum með ef en, meðan, og, síðan, uns og þegar er
kjarnafærsla yfirleitt frekar stirð þótt í flestum þessara setningagerða
megi finna góð eða a.m.k. sæmileg dæmi um kjarnafærslu.
Sama máli virðist gegna um forníslensku, þótt ég geti ekki fullyrt að
allar áðurnefndar tengingar hagi sér þar á sama hátt og í nútímamáli.11
Það er því forvitnilegt að kanna stöðu aukafallsnafnliða í aukasetning-
um. Ef þeir standa venjulega á undan sögn er það skýr frumlagshegð-
un, og bendir til þess að staða þeirra fremst í aðalsetningum sé ekki af
völdum kjarnafærslu. Lítum nú á nokkur dæmi:
11 í nær öllum fornmálsdæmum sem ég hef fundið um aukafallsnafnlið næst á eft-
ir einhverri þessara aukatenginga er um að ræða nafnlið sem yrði greindur sem frum-
lag i nútimamáli. I örfáum dæmum er óljóst hvernig á að greina aukafallsnafnliðinn;
en ég hef ekki fundið neitt dæmi um aukafallsnafnlið næst á eftir einhverri þessara
tenginga þar sem nefnifallsfrumlag er líka í setningunni. Ég hef þó ekki skoðað þetta
mjög nákvæmlega; en slík dæmi, efþau finnast, eru a. m.k. örugglega fá.