Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1996, Page 65
63
Frumlag ogfall að fornu
e En henni lést agasamlegt þykja og kvað eigi kvinna vist þar
vera. (Hákonar saga herðibreiðs, s. 810)
f Og þessa gerð sagði Sturla upp en Þórhalli læst vel líka og
svo konu hans (Sturlu saga, s. 85)
g Lést honum og það mestu þykja skipta.
(Islendinga saga, s. 374)
Hér stendur (yfirborðs)frumlag aðalsetningarinnar alls staðar í þágu-
falli, þótt sögn aðalsetningarinnar taki annars ekki þágufallsfrumlag.
Ekki virðist önnur leið til að skýra þágufallið en sú að telja það kom-
ið úr aukasetningunni, enda „vantar“ alltaf þágufallslið í aukasetning-
una. Auðvitað er vel hugsanlegt að færa aðra liði en frumlag úr auka-
setningu fremst í aðalsetningu (með kjarnafærslu); en það ætti ekki að
hafa þau áhrif að sögn aukasetningarinnar stæði í nafnhætti í stað per-
sónuháttar, eins og hér gerist. Þar að auki eru þess dæmi ((25g), eins
og Höskuldur Þráinsson vakti athygli mína á) að aukafallsnafnliðurinn
standi ekki fremst í aðalsetningunni, eins og hann ætti að gera ef um
kjarnafærslu væri að ræða. Ég tel því að setningar eins og (25) styrki
mjög kenninguna um tilvist aukafallsffumlaga í fornu máli.
3.5 Afturbeyging
Síðasta röksemdin sem ég nefni varðar langdræga afturbeygingu, þ. e.
vísun með afturbeygðu fornafni úr aukasetningu í yfirskipaða setn-
ingu. Hún er reyndar mun sjaldgæfari í fornu máli en síðar varð (sbr.
Friðrik Magnússon 1985), en ég hef þó fundið allnokkur dæmi um
hana. Þegar hún kemur fyrir á annað borð, virðist hún lúta sömu lög-
málum um undanfara og í nútímamáli; getur aðeins vísað til frumlags
yfirskipaðrar setningar, en ekki andlags, eins og Halldór Ármann Sig-
urðsson (1990:311) hefur bent á. Hér skiptir því ekki máli að vísun
afturbeygðra fornafna til andlags er algengari að fornu en nýju; það
tekur aðeins til skammdrægrar afturbeygingar, þ. e. vísunar innan ein-
laldrar setningar.
Það er því forvitnilegt að skoða hvort einhver dæmi finnist um
langdræga afturbeygingu sem vísi til aukafallsnafnliðar. Slík dæmi eru
reyndar til: