Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2011, Side 31

Andvari - 01.01.2011, Side 31
GUNNAR KARLSSON Forsetinn í söguritun íslendinga / Veturinn 1879-80, meðan lík Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar konu hans lágu kistulögð í Kaupmannahöfn og biðu fars til íslands með vorskipum, sat presturinn á Reynivöllum í Kjós við að skrifa ágrip af sögu íslendinga, fyrstu Islandssöguna sem var skrifuð eftir Crymogœa Arngríms Jónssonar lærða 270 árum fyrr nema ef telja ber Árbækur íslands í sögu-formi eftir Jón Espólín sem náði fram um miðja 19. öld. Dánarfregn hjónanna barst ekki til íslands fyrr en 4. febrúar um veturinn,1 og áður en það varð lauk klerkur við verk sitt. Það kom því í hlut séra Þorkels Bjarnasonar að skrifa forsetann inn í íslandssöguna, án þess að vita annað en að hann ætti eftir að lesa ummælin um sig sjálfur. í frásögn af þjóðfundinum 1851 kemur Jón Sigurðsson fyrst fyrir, „sem þá og síðan hefir verið forvígismaðr þeirra, er krafið hafa sjálfsforræðis landinu til handa ..og tilfærð eru óstytt fræg andmæli hans þegar stiftamtmaður sleit fundinum: ,,„Eg mótmæli í nafni konungs og þjóðarinnar þessari aðferð, og áskil þinginu rétt til, að klaga til konungs vors yfir lögleysu þeirri, er hér er höfð í frammi“.“ Síðar nefnir Þorkell að Jón hafi verið í fjárhagsnefndinni 1861, sem ráðslagaði um fjárhagsaðskilnað Dana og íslendinga, þó án þess að segja frá sérstöðu Jóns í nefndinni og frumlegum tillögum hans um viðfangsefni hennar. Næst er Jón spyrtur saman við Hilmar Finsen landshöfðingja sem sagt er að hafi „starfað ... að stjórnmálum landsins með þrautgæði og stillingu, enda eiga Islendingar honum og Jóni Sigurðssyni allra manna mest að þakka sjálfs- forræði það, er landið hefir fengið.“ Loks kemur Jón við söguna í frásögn af Þingvallafundi sem var hluti þjóðhátíðarhalda 1874. Séra Þorkell segir: Þar var og samið ávarp frá landsmanna hálfu til Jóns Sigurðssonar alþingismanns í Kaupmannahöfn, er þá sem áðr var af öllum almenningi mest virðr allra íslendinga. Var honum þakkað þar fyrir starf hans og baráttu fyrir velferðarmálum landsins, en það er alkunnugt, að hann hefir varið æfidegi sínum til þess verks, er bezt er og fegrst, en það er að ávinna þjóð sinni frelsi, og hvetja hana til þess, er efla má framfarir hennar og hagsæld. Við þessi orð er hengd neðanmálsgrein, undirrituð „J. Þ.“ sem er líklega Jón Þorkelsson rektor: „Þá er þetta var ritað, hafði lát Jóns Sigurðssonar eigi frétzt hingað til lands, en hann andaðist 7. des. 1879.“2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.