Andvari - 01.01.2011, Blaðsíða 150
148
JÓN KARL HELGASON
ANDVARI
III
Hugmyndir íslendinga um gerð líkneskis af Kristjáni IX. höfðu verið settar
fram í kjölfar andláts hans 29. janúar 1906. Hreyft var við hugmyndinni
rúmum tveimur mánuðum síðar í grein í vikuritinu Reykjavík en þá þegar
höfðu málsmetandi menn bundist samtökum um söfnun vegna málsins. I
upphafi greinarinnar var útlistað að íslendingar hefðu aldrei verið miklir
dýrkendur danska konungsveldisins en um leið tekið fram að hinn nýlátni
konungur hefði þar ótvíræða sérstöðu. „Kristján 9. gaf oss frelsið aftur -
frelsið til að stjórna oss sjálfir. Hann gaf oss Stjórnarskrá íslands 1874. Og
hann gerði meira. Hann gaf oss aftur þær umbætur á henni, sem vér sjálfir
æsktum 1903.“26
Síðar þetta sama ár komu einnig fram hugmyndir um að reisa líkneski af
Ingólfi Arnarsyni. Forsaga málsins var sú að Danir höfðu áhuga á að gefa
íslendingum afsteypu af höggmynd Thorvaldsens af Jason. Var reiknað með
að henni yrði fundinn staður á Austurvelli, nálægt sjálfsmynd listamannsins.
Málið var rætt í dönsku blöðunum og lýstu einhverjir þar þeirri skoðun að
nær lagi væri að Danir létu steypa í eir líkneski Einars Jónssonar af Ingólfi
Arnarsyni. Þessi tillaga var gripin á lofti af ísafold sem taldi öruggt að lands-
menn hefðu miklu meiri áhuga á Ingólfi en Jason.
Harla fagurt og tilkomumikið og stórum frægt listaverk fengjum vér, þar sem Jason er,
og hugnæmt er oss það, að höfundurinn, hinn heimsfrægi snillingur, var af íslenzku
bergi brotinn.
En hitt vegur stórum meira, margfalt meira, að líkneskið jartegni ekki suðræna,
gríska goðfræðishetju, heldur norrænan víking og þar á ofan frægasta manninn í sögu
þessa lands, annan en Snorra Sturluson, - Kólumbus Islands.27
Greinarhöfundur lagði til að Ingólfi yrði komið fyrir ofan á Skansinum, gömlu
fallbyssustæði sem stóð á þeim slóðum þar sem Seðlabankinn er nú.28 Þegar
fréttist að Danir væru hættir við þessi áform lagði Jón Halldórsson, formaður
Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur, til að félagið stæði fyrir samskotum vegna
Ingólfsstyttunnar. Formleg tillaga þessa efnis var samþykkt á félagsfundi í
september 1906. Jafnframt var kveðið á um að félagið legði fram 2.000 króna
stofnfé en áætlaður kostnaður við fyrirtækið var um tíföld þau upphæð.29
f upphafi tuttugustu aldar var því í raun verið að vinna að því að koma upp
fjórum opinberum minnismerkjum í Reykjavík, um þá Jónas, Jón, Kristján og
Ingólf. Enn fremur hafði komið til tals að efna til samskota fyrir afsteypu af
styttu sem Einar Jónsson hafði gert af Snorra Sturlusyni og var Austurvöllur
nefndur sem mögulegur vettvangur hennar.30 Hugmyndin, sem virðist hafa
komið frá Einari sjálfum, var sett fram af Birni Líndal í blaðagrein árið 1903
en þar var jafnframt vakin athygli á að myndhöggvarinn nyti ekki lengur