Andvari - 01.01.2011, Blaðsíða 137
ANDVARI
SVIPMYND AF INGIBJÖRGU
135
úr stáli.62 Þá eru enn til dropalaga gulleyrnalokkar sem Ingibjörg er með á
myndum þegar aldurinn er tekinn að færast yfir.63 Brjóstnæla Ingibjargar,
sem hún skartar á nokkrum ljósmyndanna, er enn til. Hún er úr silfri, skreytt
fuglsmyndum og laufi.64 Auk þess er varðveitt í minjasafninu fallegt og
vandað nisti úr gylltu silfri með lítilli ljósmynd af Jóni og hárlokki hans
sem Ingibjörg bar jafnan um hálsinn.65 Það sýnir hversu Jón var Ingibjörgu
hjartfólginn. Með óræðum hætti glæða þessir áþreifanlegu skartgripir úr eigu
Ingibjargar ljósmyndirnar af henni auknu lífi, rétt eins og fortíðin lifni við.
Ljósmyndirnar af Ingibjörgu benda til þess að hún hafi verið móttækileg
fyrir nýjungum. Starf ljósmyndara var nýtt og yfir ljósmyndatökum töluvert
nýjabrum fyrstu áratugina. Ingibjörg var þó alls ekki eina íslenska konan sem
fékk teknar af sér myndir á síðari hluta 19. aldar. Það gerðu fleiri íslenskar
konur sem samtíða voru Ingibjörgu og höfðu tök á slíku, t.d. vinkona hennar,
Sigríður Einarsdóttir, eiginkona Eiríks Magnússonar. Fjölmargar ljósmyndir
eru varðveittar af henni í Mannamyndasafni Þjóðminjasafns Islands. Það
hefur þó verið einstaklingsbundið hversu áhugasamt fólk hefur verið um ljós-
myndatökur. Vinkona Ingibjargar, sem bjó hjá þeim Jóni um áratuga skeið í
Höfn, Sigríður Thorgrimsen, landfógetaekkja, hefur líklega ekki verið mikið
fyrir slíkt þó hún hefði rétt eins og Ingibjörg tök á því að fara til ljósmyndara.
Aðeins er ein mynd af henni varðveitt í Mannamyndasafni Þjóðminjasafns 66
Víða kemur fram að Ingibjörg lá ekki á skoðunum sínum og greinilegt
er að hún hefur verið með stórbrotna skaphöfn. Um það eru lýsingar sam-
ferðamanna þeirra Jóns og Ingibjargar til vitnis. Ef til vill má greina þessa
skapgerð í myndunum af Ingibjörgu? í örfáum bréfum hennar kemur fram
umhyggjusemi í garð vina og vandamanna. Þessa umhyggju og mildi má
greina í svip Ingibjargar á ljósmyndunum.
Ljósmyndirnar af Ingibjörgu Einarsdóttur sýna konu sem tileinkar sér
nútímalífshætti í vaxandi borgaramenningu Kaupmannahafnar. Þá sýna
myndirnar, og fjöldi þeirra sem varðveittur er, að Ingibjörg hefur viljað halda
góðum tengslum við vini, frændfólk og kunningja, m.a. á íslandi. í þeim til-
gangi hefur hún sent fólki myndir af sér. Myndirnar sýna hvernig Ingibjörg
ber árin og lífsstritið á síðari hluta ævinnar. Þær sýna einnig glæsilega unga
konu í blóma lífsins, sem nýkomin er til höfuðborgar Danaveldis úr litla
þorpinu Reykjavík.