Andvari - 01.01.2011, Blaðsíða 90
88
ÞORVALDUR GYLFASON
ANDVARI
III. Brjóstmyndin eftir Brynjólf Bergslien
Aðrir vinir Jóns sýndu honum einnig ýmsan sóma í lifanda lífi. Þegar Jón varð
sextugur, var hann á íslandi við þinghald, og fer engum sögum af afmælisdegi
hans 17. júní 1871. En eftir að hann kom aftur heim til Kaupmannahafnar
þá um haustið, héldu vinir hans honum veglegt samsæti þar. Þetta var 16.
nóvember 1871. Þar voru flutt kvæði fyrir minni íslands eftir séra Matthías
Jochumsson og fyrir minni Jóns eftir Steingrím Thorsteinsson, sem var á
staðnum og flutti kvæði sitt sjálfur („Heil sit þú, hetjan góð“). Þessir karlar
kunnu að halda veizlur.
Vinir Jóns höfðu löngu áður haft samband við Brynjólf Bergslien, sem
áður var nefndur, og beðið hann að gera brjóstmynd af Jóni til að færa honum
í afmælisveizlunni, og var hugmyndin sú, að marmaragerð myndarinnar
(dagsett 1872) yrði færð Alþingi að gjöf að Jóni látnum; það varð. Jón hafði
fengizt til að sitja fyrir hjá Bergslien í október 1870, og hann hafði oft áður
látið til leiðast að láta taka af sér myndir til að senda vinum sínum á íslandi að
þeirra ósk. Þannig stendur á því, að til eru ljósmyndir af Jóni á ýmsum tímum
auk nokkurra olíumálverka. Eina slíka mynd lét hann mála af sér og sendi
Ingibjörgu unnustu sinni heim til íslands löngu fyrir þrítugt. Alþingismenn
létu síðar mála af honum stóra olíumynd, sem hangir enn í Alþingishúsinu, en
ungir námsmenn í Kaupmannahöfn létu steinprenta mynd af honum, og hékk
sú mynd því nær á öllum fremri heimilum á Islandi.21
Bergslien bjó í Kaupmannahöfn, þegar þetta var, og vann að líkneskinu
af Karli Jóhanni konungi Svía og Norðmanna, en það var fyrsta verk sinnar
tegundar í Noregi, afhjúpað 1875 framan við konungshöllina í Osló og stendur
þar enn. Það var því enginn aukvisi, sem vinir Jóns fengu til að gera brjóst-
myndina. Bergslien gerði einnig líkneskið af skáldinu Henrik Wergeland,
sem stendur á Eidsvoldstorgi í Osló (brons, afhjúpað 1881). Líkneski hans af
ævintýraskáldinu P. Chr. Asbjörnsen (sink) og leikaranum Johannes Bruun
(brons) standa einnig bæði í Osló. Hann gerði einnig líkneski af Haraldi
hárfagra, Ólafi helga, Sverri konungi og Hákoni góða. Nokkrar brjóstmyndir
liggja einnig eftir hann, þar á meðal er marmaramynd af stjórnmálamann-
inum Ole Gabriel Ueland, sem stendur í norska stórþinginu. Verk Bergsliens
eru til sýnis meðal annars í Nasjonalgalleriet í Osló.
Séra Matthías bjó hjá Bergslien part úr vetri 1870-1871 og fylgdist með
brjóstmyndinni af Jóni verða til. Um þetta segir Matthías í sjálfsævisögu
sinni:22
„Tók ég mér síðan vist hjá vini mínum, Brynjólfi Bergslien myndasmið; hafði
ég næstum daglega verið hjá honum á vinnustofu hans um veturinn í Höfn
meðan hann gerði standmyndina miklu, af Karli Johan konungi, er nú var