Andvari - 01.01.2011, Page 49
SVERRIR JAKOBSSON
Um fræðastörf Jóns Sigurðssonar
Flest sú iðja sem Jón Sigurðsson er kunnur fyrir voru störf sem hann sinnti í
hjáverkum. Þar má nefna stjórnmálastarf hans og setu á Alþingi þar sem ráð-
gjafarþingið kom einungis saman í fjórar vikur á tveggja ára fresti. Hið sama
gilti um ritstjórn hans á tímaritinu Nýjum félagsritum, forsetastörf í Hinu
íslenska bókmenntafélagi og síðar í Hinu íslenska þjóðvinafélagi. Ekkert af
þessu var hægt að kalla aðalstarf Jóns Sigurðssonar heldur voru þetta auka-
störf sem hann sinnti meðfram fastri vinnu annars staðar.
Starfsferill Jóns Sigurðssonar er í stuttu máli sá að hann varð annar tveggja
styrkþega Árnasafns 1835 og vann samhliða því starfi hjá Bókmennta-
félaginu, Vísindafélagi Dana (Det kgl. danske Videnskabernes Selskab), og
Fornfræðafélaginu (Det kgl. nordiske Oldskriftselskab). Hann var skjala-
vörður Fornfræðafélagsins 1845-1849, er staðan var lögð niður, en naut síðan
biðlauna um hríð. Eftir það hlaut hann styrk úr sjóði J. L. Smiths, uns hann
fékk fastan styrk úr ríkissjóði Dana til þess að gefa út fornbréfasafn og sinna
öðrum vísindastörfum árið 1855. Hélst sá styrkur óbreyttur til 1874. Eftir það
fékk hann heiðurslaun frá Alþingi íslendinga til dánardags. Af þessu má ráða
að Jón Sigurðsson var alla tíð fræðimaður í fullu starfi, en sinnti vissulega
ýmsu samhliða, þ. á m. stjórnmálavafstri.
í því máli sem hér fer á eftir er ætlunin að beina sjónum að aðalstarfi Jóns
Sigurðssonar, fræðimennsku hans og þeim störfum sem hann hafði einkum
h'fsviðurværi af. Þar mun verða litið til menntunar Jóns og fræðilegs undir-
búnings, til útgáfustarfa hans fyrir Árnasafn og að lokum verður sérstaklega
vikið að íslenzku fornbréfasafni og öðrum heimildaritum sem Jón gaf út hin
seinni ár ævinnar. Ætlunin er að greina söguskoðun Jóns Sigurðssonar eins og
hún birtist í fræðastörfum hans, og samhengi hennar við hugsjóna- og stjór-
nrnálastarf hans.
Hinn klassíski grundvöllur
Jón Sigurðsson hóf ekki skólanám fyrr en fjórum árum eftir stúdentspróf.
^ht nám til stúdentsprófs stundaði hann heima hjá föður sínum en síðan
tQk hann stúdentspróf hjá dómkirkjuprestinum í Reykjavík 1. júní 1829,