Andvari - 01.01.2011, Síða 58
56
SVERRIR JAKOBSSON
ANDVARI
fornöld þá var landið í mestum blóma, og var þó kunnátta, handiðnir, skipa-
kostur og aðdrættir til sjáfar allir margfalt minni meðal þjóðanna enn nú er“.35
Þannig má greina tvær hliðar á fræðimanninum Jóni Sigurðssyni. Annars
vegar var það hinn vandvirki textafræðingur sem gaf út fornsögur og var
manna glöggastur á samhengi handrita og vísindaleg vinnubrögð. Hins vegar
var það alþýðufræðarinn sem samdi langar greinar í Ný félagsrit þar sem
röksemdafærslan hvíldi á eindreginni og afdráttarlausri sýn á sögu veraldar
og þó sérstaklega sögu íslands. Ahersla Jóns á þjóðfrelsið sem aflvaka allra
hluta gerði það að verkum að fyrstu aldir Islandssögunnar verða eins konar
gullaldarskeið en síðan hefst hnignun og niðurlæging, þó að eitthvað hafi
rofað til fyrst eftir siðaskiptin og á 17. öld.36
Sjálfstœð frœðastörf Jóns; fornbréfasafnið
Nokkur breyting varð á högum Jóns Sigurðssonar eftir að hann fékk styrk úr
sjóði J.L. Smiths til fræðistarfa 1852 og síðan fastan styrk úr ríkissjóði Dana
til að sinna fræðistörfum, þ. á m. útgáfu fornbréfasafns. Eftir það var Jón
síður háður stofnunum eða félögum á borð við Árnasafn og Fornritafélagið
í sínu verkefnavali og má sjá hvernig almenn söguskoðun mótar í æ ríkara
mæli fræðastarf hans. Stærstu útgáfuverkefnin sem Jón tók að sér, og hafði
viðurværi af, tengdust t.d. þeirri viðleitni hans að skilgreina stöðu Islands
innan danska ríkisins í sögulegu ljósi, en það eru Lovsamling for Island (kom
út í 17 bindum 1853-1877) og fyrsta bindi íslenzks fornbréfasafns (kom út
1857-1876).
í grein sinni „Hugvekju til íslendinga" frá 1848 víkur Jón í fyrsta sinn að
því sjónarmiði að samkomulag Islendinga við Hákon Noregskonung frá árinu
1262, „Gamli sáttmáli“, skipti öllu máli fyrir stjórnskipunarlega stöðu íslands
innan Danaveldis, hafi verið í gildi fram að innleiðingu einveldis 1662 og eigi
að hafa áhrif á stöðu íslands innan ríkisins eftir afnám einveldisins.37 Þetta
rökstuddi Jón nánar í ritinu Om Islands statsretlige Forhold árið 1855.38 í rit-
gerðum sínum í Nýjum félagsritum um þetta efni vísar hann aftur og aftur til
skjala í Lovsamling for Island og íslenzku fornbréfasafni. „Hin sögulegu skjöl
voru sá grundvöllur sem stjórnmálabarátta Jóns Sigurðssonar og kröfugerð öll
hvíldi á.“39
Það var hluti af vinnu Jóns í Árnasafni að safna fornbréfum og hann fékk
snemma þá hugmynd að gefa út Diplomatarium Islandicum.40 Aðdragandi
þess að þetta varð aðalstarf hans var sá að Reykjavíkurdeild Hins íslenska
bókmenntafélags samþykkti 23. ágúst 1854 að óska eftir styrk úr Árnasjóði til
að gefa út fornbréf. Var það tilefni fyrir stjórn Árnasafns að leita eftir styrk frá
danska þinginu til Jóns að gefa út fornbréfasafnið og til annarrar vísindastarf-