Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2011, Page 75

Andvari - 01.01.2011, Page 75
andvari JÓN SIGURÐSSON OG VESTFIRÐINGAR 73 Einarsson á Hvilft, heitasti stuðningsmaður Jóns í sýslunni, skrifaði Jóni og sagði að allir fundarmenn á ísafirði hafi mælt gegn Frökkum, nema hann einn og Einar Magnússon rennismiður á Isafirði. Meðal þeirra sem kosnir voru í bænarskrárnefndina var Ásgeir Ásgeirsson kaupmaður á ísafirði.30 Það var því úr vöndu að ráða fyrir þingmanninn Jón, þegar málið kom til kasta Alþingis sumarið 1857. Alþingi kaus fimm manna nefnd til að fjalla um málið og hún lagði til að beiðni Frakka væri hafnað að svo komnu, „eins og hún nú liggur fyrir.“ Tólf þingmenn ræddu málið við fyrri umræðu og vildu sumir að fyrirspurn Frakka yrði neitað afdráttarlaust. Töldu þeir að orðalag nefndarinnar væri tilboð nm frekari viðræður og má leiða líkur að því að það væri gert að undirlagi Jóns Sigurðssonar. Jón tók ekki til máls um nefndarálitið eða niðurstöðuna.31 Eanska stjórnin svaraði þeirri frönsku í samræmi við niðurstöðu Alþingis, en ekki varð af viðræðum á milli landanna. Og var málið þar með úr sögunni og Jón Sigurðsson gat haldið áfram að tala um fjárhagslegan aðskilnað við Dani °g stjórnskipunamál, en þurfti ekki að standa frammi fyrir kjósendum sínum 1 viðkvæmum atvinnumálum. Dýrlingur Vestfjarda Jón Sigurðsson hélt stöðu sinni sem málsvari íslensku þjóðarinnar allt frá því Alþingi kom fyrst saman árið 1844 til síðasta þings sem hann sat árið 1877 °g naut óskoraðs stuðnings á Vestfjörðum til æviloka. Hann var hvatamaður að mörgum framfaramálum í ræðu og riti og með bréfaskriftum og persónu- ^egum afskiptum, jafnvel þó hann byggi í Kaupmannahöfn alla tíð. Hér má nefna Kollabúðafundi, stofnun fyrsta stýrimannaskólans á ísafirði 1852, stofnun vöruvöndunarnefndar fyrir saltfiskverkendur, útgáfu lítillar fiski- bókar til að kenna bætt vinnubrögð við saltfiskverkun og stofnun bændaskóla 1 Vestfirðingafjórðungi. Andi Jóns varð mörgum uppörvun og fyrirmynd. Og strax við andlát hans tók helgisögnin að myndast um Vestfirðinginn Jón Sigurðsson, sem haldið hefur nánast órispuð fram á þennan dag. Þegar stjórn- ntálaflokkar tóku að myndast um og eftir aldamótin 1900 reyndu þeir að tengja sig við minningu Jóns. Það gildir enn. Til að sýna hina sterku trú á Jón Sigurðsson og gildi hans skal hér í lokin ^lrt fyrsta erindi úr kvæði Guðmundar Guðmundssonar skólaskálds úr blaðinu Valurinn sem gefið var út á ísafirði árið 1907. Kvæðið er ort í tilefni af hátíðarhöldum 17. júní það ár á ísafirði, en þá voru ísfirðingar þegar farnir að halda fæðingardag hans hátíðlegan. í kvæðinu má segja að Vestfirðingar hafi loks eignast sinn héraðsdýrling:32
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.