Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1939, Page 35

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1939, Page 35
FRÁ ÞEIM YNGRI 9 stúlku-kindar kunna að bíða, en rífur sig þó út úr því að lokum með heiðri og sóma. Það er góðs viti að Þórunn hefir skrifað þessa sögu svo að hvergi minnir á Sölku-Völku H. K. Laxness, jafn-lík og örlög þeirra eru. Eg sé ekki betur en að með henni hafi hún tekið sér sæti á bekk þeirra yngri höfunda, sem einhvers má af vænta í framtíðinni, — ef hún heldur heilsunni. Þó margt sé vel um síðustu bók Þórunnar, Líf annara, virðist mér hún ekki komast til jafns við Að Sólbakka. Ef til vill er það því að kenna, að bygging hennar er lausari fyrir, heildarsvipurinn ekki ákveð- inn. Annars er sú bók um ein- staklinga gegn almenningsálitinu í íslenzku þorpi. Sama árið og Þórunn Magnús- dóttir sendi frá sér Dætur Reykja- víkur kom út lítil Ijóðabók, Þakkir, eftir aðra Reykjavíkur dóttur: Rósu K. Blöndals. Hún er fædd í Reykja- vík 20. júlí 1913. Faðir hennar var löggæslumaður þar, en að einhverju leiti hefir hún þó alist upp í sveit, eins og sjá má af kvæðum hennar. Á kennaraskólann gekk hún (1932- 34), tók gott próf og er nú gift kenslukona í Reykjavík. Það er Ijóðrænt vorveður í ljóða- kveri hennar, hún fagnar æskunni, þakkar daga hennar, sem hún veit að ekki koma aftur. Vikivakar og fornkvæði eru þar og, enda er kon- an sýnilega rómantísk að upplagi. Þetta kemur enn berar fram í skáld- sögunni Lífið er leikur 1938, sem telja má ágæfca byrjendabók. Hún er um stallsystur sem leggja upp í lífið, leikandi við hvern sinn fingur, en komast áður en varir í öngþveiti ásta og sjúkdóma. Það tekst ekki betur en svo, að þær unna sama manni báðar, en hitt er þó verra að þessum manni er enginn fiskur um hrygg vaxinn. Hann kann ekki að velja, tekur fynst þessa og síðan hina, sem hann bregst hryggilega að lokum dauðvona á berklahæli. En þrátt fyrir “sorgirnar þungar sem blý”, andar bókin Ijóðrænni æsku iog björtum vonum um líf og fagran leik. Stíllinn er ljóðrænn, fellur vel að efninu, og er merkilega persónulegur hjá ekki eldri höfundi. Sama árið og þær Þórunn Mag- núsdóttir og Rósa B. Blöndals kom- ast á prent komu lík-a út Kvæði eftir Guðmund Daníelsson frá Guttorms- haga. Þau vöktu ekki mikla at- hygli, en voru þó talin þess verð að berast saman við Fagra jörð eftir Tómás Guðmundsson, sem dæmi upp á ljóð sveitam'anns, sem enn hefir ekki fundið sjálfan sig á braut hins eina sáluhjálplega sósíalisma. En brátt sýndi Guðmundur að hann hafði byrgði gnóga þar sem aðrir höfðu ekki krepping fullan, jafnvel þótt á skorti jafnaðarmenskuna. Þetta fundu menn er menn lásu Bræðurnir í Grashaga 1935 og framhaldið Ilm daganna 1936. Guðmundur Daníelsson er fæddur í Guttormshaga í Holtum 4. okt. 1910, elsti sonur efnahjóna, sem þar búa. Guðmundur fór fyrst á Laug- arvatnsskólann, síðar á Kennara- skólann, útskrifaðist þaðan eftir tveggja ára nám 1934. Fór utan (Norðurlönd, Þýzkalland og Eng- land) sumarið 1936, en hefir annars stundað barna-kenslu á vetrum í sveit, en útiverk á sumrum. Kvæði Guðmundar bergmáluðu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.