Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1939, Síða 128
TUTTUGASTA ARSÞING ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS
101
lið, samþykt. Fyrsti liður lesinn og
samþyktur í einu hljóði. Tillögumenn
Rósmundur Árnason og Guðm. Grímsson
dómari. 2. iiður lesinn. G. Grímsson
lagði til og séra Jakob Jónsson studdi, að
samþykkja hann óbreyttan. Nokkrajr
umræður. Hann síðan samþyktur með
öllum greiddum atkvæðum. Þriðji liður
lesinn. Stuttar umræður. Tillaga Ásm.
P. Jóh. og J. Húnfjörð, að samþykkja
hann óbreyttan, — samþykt. Fjórði liður
lesinn og ræddur frá ýmsum hliðum. Til-
laga J. J. Bildfell og Sig. Vilhjálmssonar
að vísa þessum lið aftur til nefndarinnar.
Samþykt.
Bergþór E. Johnson las því næst:
Alit útgáfunefndar
Nefndin leggur til að eftirfarandi tillög-
ur séu samþyktar:
1. Að Tímarit félagsins sé gefið út á
sama hátt og að undanfömu, og sjái
stjórnamefndin um útgáfu þess.
2. Að félagið haédi áfram útgúifu
Baldursbrár næsta ár og sé stjómar-
nefndinni falið framkvæmdarvald í því
efni.
3. Að fólk, sem statt er á þingi úr
hinum. ýmsu bygðarlögum, táki að sér
útbreiðslu á tolaðinu næsta ár.
B. E. Johnson
S. W. Melsted
S. ölafsson
Tillaga Ara Magnússonar, studd af
Asm. P. Jóhannssyni, að taka álltið fyrir
Rð fyrir iið, samþykt. Fyrsti liður, um
Tímaritið, lesinn og samþyktur, samkv.
tillögu J. J. Bíldfell og Sig. Vilhjálms-
sonar. Annar liður, um Baldursbrá, lesinn
°g ræddur. Til máls tóku allmargir fund-
armenn, og urðu um hann all langar og
skemtilegar umræður. Ritari gerði til-
iögn um að samþykkja liðinn óbreyttan.
Asm. p. Jóh. studdi.
Breytingartiliaga Áma Eggertssonar og
A-ra Magnússonar, að vísa þessum lið
aftur til nefndarinnar, samþykt, og fyrri
tillagan því feld.
Þriðji liður, um útbreiðslu Baldursbrár,
samþyktur án breytinga, eftir tillögu Dr.
Beck og Áma Eggertssonar.
Aftur tekinn fyrir sá liður fræðslu-
nefndarálits, er visað var til nefndar.
Var hann, samkvæmt tillögu Áma
Eggertss. og J. J. Bíldfell, samþyktur
með áorðum breytingum. AJt nefndar-
álitið síðan borið vmdir atkvæði og sam-
þykt i einu hljóði.
Þá las Ásm. P. Jóhanmsson
Alit trtbreiðslunefndar
Nefnd sú, sem sett var til að íhuga út-
breiðslumálin, ieyfir sér að leggja eftir-
fylgjandi álit og tillögur fyrir þingið:
1. Nefndin vill lýsa ánægju sinni yfir
því, að yngri deild íslenzks þjóðræknisfé-
lagsskapar hefir verið stofnuð í Wynyard
Sask. Ennfremur vill nefndin lýsa á-
nægju sinni yfir stofnun, vexti og við-
gangi þjóðræknisdeildarinnar “Báran” að
Mountain og Garðar, N. Dakota.
2. Nefndin telur að mjög mikil nauð-
syn sé á þvi, að nýjar deildir verði stofn-
aðar alstaðar þar sem þvi verður mögn-
iega við komið. Vill nefndin sérstáklega
benda á eftirfylgjandi staði, þar sem
starfsemi ætti að vera hafin, að hennar
áliti, í samráði og samvinnu við áhuga-
sama menn þar búsetta: Árborg, Riverton,
Gimli, Lundar og Winnipegosis. Til
skýringar má geta þess, að deildin í
Winnipegosis, sem starfaði með miklum
áhuga í mörg ár, er nú hætt starfi. Nefnd-
in viU taka fram í þessu samtoandi, að
þar sem skilyrðin kynnu að vera betri
fyrir stofnun deildar eða einhverskonar
þjóðræknissamtaka meðal yngra fólks,
þar ætti að snúa sér að þeirri hHð máls-
ins.
3. Þá vill nefndin benda á, að heim-
sóknir til deilda, sem nú þegar eru til,
eru mjög gagnlegar, og að stjómamefnd
Þjóðrækndsfélagsins má ekki slá slöku við
i því starfi. Ætti hún að hvetja deild-
imar til að nota sér aUa þá utanaðkom-
andi hjálp, sem þær get fengið, og vera