Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1945, Blaðsíða 140
118
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
upp og samþykt, 18 með 2 á móti. Mátti
því heita að fundurinn vœri einróma á
móti því að þingtima vœri breytt.
Við kusum erindreka á Þjóðræknis-
þingið á fundinum í Glenboro, þann 18.
jan., annars hefir deild okkar verið frem-
ur aðgerðalítil á árinu og engin afrek
eru frá henni að segja, við kusum góða
nefnd á fundinum til að skrifa upp með-
limi fyrir næsta ár.
Með bestu óskum til þín og þinna, og
svo til Þjóðræknisfélagsins og í hönd
farandi þings.
Þinn einlægur,
G. Oleson, skrifari
Nú minti forseti á samkomu Icelandic
Canadian Club, er haldin yrði að kveld-
inu kl. 8 e. h., þar sem séra B. Theodore
Sigurðsson yrði aðal ræðumaður.
Séra Halldór E. Johnson bar fram
munnlega kveðju til dr. Beck, forseta fé-
lagsins, frá öldruðum manni á Lundar;
var forsetinn, að skilningi þess er kveðj-
una sendi talinn “sverð” og “brynja og
skjöldur” félagsins.
Er hér var komið fundi, bar Á. P. Jó-
hannsson fram álit dagskrárnefndar um
að hinni prentuðu dagskrá þingsins sé
fylgt.
Miss Sigurrós Vídal og Björn Stefáns-
son gerðu tillögu um að hún sé viðtek-
in og var það samþykt.
Ársskýrsla deildarinnar “ísland” í
Morden, Man., fyrir árið 1944 var nú
lesin upp af ritara og var hún viðtekiri
af þinginu samkvæmt tillögu þeirra séra
Halldórs E. Johnson og Hjartar I. Hjalta-
lín. Samþykt.
Ársskýrsla deildarinnar "ísland"
Morden, Man.
Við hér urðum fyrir því óhappi, að
Brown pósthús var lokað, eftir meir en
fjörutíu ára starf. Við verðum því að fá
póst okkar frá Morden í austurhluta
bygðarinnar, eða frá Thornhill, Man., í
vesturhlutanum, og er það mjög óhent-
ugt og óvinsælt fyrirkomulag. Við verð-
um því vist hér eftir að kenna bygð vora
og deild við Morden, en ekki Brown.
Deildin okkar er með dágóðu lífi enn-
þá. Fjórir vel sóttir fundir voru haldnir á
árinu 1944. Vegna burtflutnings fólks
héðan úr bygð hefir fækkað í félagi voru,
svo er margt af ungu fólki fjarverandi
vegna stríðsins, en samt eru tuttugu og
fjórir góðir og gildir meðlimir aðalfé-
lagsins, auk allra Islendinga i bygðinni,
sem tilheyra heimadeildinni.
Embættsmenn fyrir árið sem er ný'
byrjað eru: forseti, Óskar Sigurður Gillis;
ritari, Guðrún Thomasson; fjármálarit-
ari, Jonathan Thomasson; féhirðir, Thor-
steinn J. Gíslason.
Jón Sigfússon Gillis andaðist 28. mars
síðasta ár. Hann var einn af stofnenduh1
deildarinnar hér, ágætur félagsmaður,
ekki einungis í deild vorri, heldur öllum
okkar félagsskap Islendinga hér í bygð'
inni; þess utan fjölda mörg ár í sveita-
stjórn Stanley sveitar, og 14 ár af þeim
tíma oddviti (Reeve) sveitarinnar, vi4
ágætan orðstír.
Með bestu óskum til þingsins, fyrir
hönd deildarinnar Island.
Virðingarfylst,
T. J. Gíslason
Ársskýrsla deildarinnar “Gimli”
Gimli, Man., fyrir árið 1944 var nú lesih
upp af skrifara, og viðtekin af þinginUl
samkvæmt tillögu J. Húnfjörð, er Dr’
S. E. Björnsson studdi.
Ársskýrsla deildarinnar “Gimli".
Gimli. Man., fyrir árið 1944.
Þetta fyrsta starfsár deildarinnar hefif
ekki verið viðburðarikt. Þrjár samkom'
ur hafa verið haldnar á s. 1. ári við góða
aðsókn.
íslensku skólinn gengur vel. Breytin^
varð á kensludögum. I staðinn fyrir að
kenna á laugardagsmorgna, fer kenslan
nú fram eftir kl. 4 á miðvikudögum, en
eins og áður í barnaskólanum.
Inntektir ársins ............$230.85
Útgjöld ....................... 64.64
I sjóði.......................$166.21
Kær kveðja til þingsins.
Ingólfur N. Bjarnason, skrifan