Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1945, Blaðsíða 138
116
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
Var gerður hinn besti rómur að rœðu
dr. Briem; ávarpaði dr. Beek hann ljúf-
um og viðeigandi þakklœtisorðum.
Þá kynti forseti hr. Árna G. Eylands,
sem er heiðursfélagi Þjóðrœknisfélags-
ins, ávarpaði hann nú þingið, flutti hann
kveðjur og árnaðaróskir hr. Ólafs Thors,
ríkisstjórnar fslands Þjóðræknisfélaginu
og öllum Vestur-íslendingum til handa;
ásamt kveðju og heillaóskum Þjóðrækn-
isfélags Islendinga i Reykjavík, einnig
kveðjur frá ættlandi og alþjóð ásamt
persónulegri þökk og kveðju fyrir eigin
hönd og frúar hans. Að þessum kveðjum
afloknum ávarpaði forseti hr. Eylands
viðeigandi þakklætisorðum fyrir hjálp-
semi hans Þjóðræknisfélaginu til handa,
er fram hefði komið á margvíslegan hátt
fyr og síðar, snertandi málefni félagsins.
Þessu næst var lesið bréf til þingsins
frá séra A. E. Kristjánsson í Blaine,
Washington, einnig aðrar bréflegar
kveðjur er til þingsins höfðu borist.
KVEÐJUR OG SKEYTI
til 26. órsþings Þjóðrœknisfélags
íslendinga i Vesturheimi
Reykjavík, 23. febrúar, 1945
Professor Beck, Grand Forks, N. Dak.
Hugheilar kveðjur og árnaðaróskir,
sendi eg þingi Þjóðræknisfélagsins, for-
seta þess og stjórn, með ósk um að bless-
un fylgi störfum félagsins nú sem fyr.
Sveinn Björnsson
Reykjavik, febrúar 1945
Dr. Richard Beck, Grand Fords, N. D.
í þakklátri minningu um ógleyman
lega dvöl meðal vina í Canada og Banda-
ríkjunum fyrir ári, sendi eg Þjóðræknis-
félaginu mínar bestu óskir um vöxt og
viðgang þess í framtíðinni.
Sigurgeir Sigurðsson
Wiashington, D. C., 21. febrúar 1945
Próf. Richard Beck, Grand Forks, N. D.
Bið þig flytja Þjóðræknisfélaginu inni-
iegar kveðjur mínar og einlægar óskir
um áframhaldandi gengi Þjóðræknisfé-
lagsins í þeim göfuga tilgangi að tengja
bræðraböndin milli Islendinga vestar.
hafs og austan.
Kærar kveðjur.
Thor Thors
Reykjavík, febrúar 1945
Séra Valdimar J. Eylands, Winnipeg.
Þjóðræknisfélagið í Reykjavík lætur i
ljósi þakkir fyrir vinakveðju yðar, en Þó
fyrst og fremst vegna hins ómetanlega
brautryðjendastarfs meðal fólks af ís-
lenskum stofni vestan hafs; megi ís-
lenskur hugur og hjarta samstillast að
einu og sama marki hvar, sem leiðir
liggja, nú og í framtíð allri.
Þjóðræknisfélagið í Reykjavík,
Valtýr Stefánsson
Prof. Richard Beck, forseti
Þjóðræknisféiags Islendinga
í Vesturheimi, Winnipeg.
Herra forseti, góði vin:
Þar sem eg veit, að á þjóðræknisþing'
inu, sem nú situr í Winnipeg, mðrg
hundruð Islendingar koma saman í hinu
göfuga starfi sínu fyrir eflingu og við'
haldi hinna andlegu banda við Island.
vil eg biðja þig að færa þeim öllum míu'
ar bestu kveðjur og heillaóskir fyrir
Þessu glæsilega starfi ykkar, sem hefir
svo mikla þýðingu líka fyrir okkur scrTl
búum á heimalandinu. Eg fann svo ve1
er eg heimsótti ykkur og dvaldi hjá
ykkur þessa tvo ógleymanlegu mánu®*'
hve ísland á mikil ítök í hugum ykkab
gömlum og ungum, og eg fann í Þeinl
innilegu og stórkostlegu móttökum, er
þið veittuð mér, hjarta Islands opnast s
móti mér, á öllum þeim stöðum, sem Þ’®
komið til móts við mig, til að hey13
íslensk ljóð og íslensk lög á hinu sögu
rika máli okkar, hinni íslensku tungu'
Eg vil því biðja þig, herra forseti, a°
færa hinum mörgu vinum mínum í WiJl,
nipeg, í Mountain og Garðar og í Gran
Forks — og á Lundar — og gamla fólK.
inu á Betel, öllum, sem stóðu að því a
gefa mér þessi ógleymanlegu augnabl* '
tli geymslu og til ævarandi gleði á kon^
andi árum — þakkir mínar fyrir PesSJ„
gleðistundir er við komum saman-