Sagnir - 01.06.1993, Blaðsíða 52

Sagnir - 01.06.1993, Blaðsíða 52
lokum hrökklaðist Eiríkur frá völdum árið 1439.15 Á íslandi ríkti valdatóm allt þetta tímabil og konungsvaldið hafði hda stjóm á landsmönnum. Tilraunir Dana- konungs til að hindra sighngar Englend- inga til landsins báru lítinn árang- ur og þeir héldu ótrauðir upptekn- um hætti.'6 Á þessum tíma vom ís- lenskir biskupar skipaðir af páfá en ekki af hinum norska erkibisk- upi í Niðarósi. Margrét drottn- ing og eftirmaður hennar, Eiríkur af Pommem, höfðu þó jafnan hönd í bagga með þeim embættisveiting- um en á þriðja áratug aldarinnar virðist Eiríkur hafa misst tökin á þeim og páfi því fengið fijálsari hendur.17 Bjöm Þorsteinsson telur líklegt að það hafi verið fýrir áhrif Eng- lendinga að Marteinn V. páfi skipaði Englendinginn Jón Vilhjálmsson Craxton biskup á Hólum 1426. Svo mikið er víst að hann reyndist Englend- ingum haukur í homi á valdatíð sinni. Það styrkti Jón í sessi að hann naut stuðn- ings Lofts ríka Guttormssonar.18 Starfs- bróðir hans Jón Gerreksson, biskup í Skálholti, var ekki jafn heppinn; honum var drekkt í Brúará af tveim höfðingjum úr nágrenni Jóns Craxtons, Þorvarði, syni Lofts ríka, og Teiti Gunnlaugssyni. Eftirm£ af þessu ódæðisverki urðu htil, Teitur Gunnlaugsson var t.d. kjörinn lögmaður skömmu síðar. Bendir það til þess að banamenn biskups hafi haft sterka bakhjarla. Seinna þurfti Teitur að standa fyrir máh sínu vegna þess að hann hélt áfram að Mta á Eirík af Pommem sem konung sinn löngu eftir að sá hafði verið hrakinn firá völdum. Morðið á Skálholts- biskupi varð honum hins vegar ekki eins skeinuhætt. Víg Jóns biskups er skýrt dænti um að það upplausnarástand sem ríkti hér á landi á þessum tíma. Hvorki fýrr né síðar finnast dæmi þess að menn hafi komist upp með að drepa biskup refsingarlaust. Tengsl landsins við dansk-norska ríkið tóku nú aftur að styrkjast þegar vald til að veita biskupsembætti á íslandi komst aftur í hendur erkibiskupsins í Niðarósi og norskur maður, Gottskálk Keneksson, var skipaður biskup á Hólum árið 1442.19 Ekki siður varð það til að efla stöðu kóngs- ins á Islandi að nú vora komnir til sög- unnar ungir höfðingjar sem tóku afstöðu með kónginum gegn Englendingum og leituðu eftir frama í skjóh vaxandi konungsvalds. Auður skiptir um hendur Þegar Kristófer af Bæjaralandi, eftir- maður Eiríks af Pommem á konungsstóh Danmerkur og Noregs, tók við völdum var konungsvald veikt í ríki hans og ókynð ríkti víða. Viðbrögð hans voru að gefa út þrjár réttarbætur um landsfrið, lög og reglu í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.20 Veturinn 1444-1445 var Einar Þorleifsson firá Vatnsfirði með konungi og var honum falin hirðstjóm á Islandi, norðan lands og vestan, í staðinn fyrir mág sinn, Orm Loftsson. Þessa valda- töku Þorleifssona bar skyndilega að og telur Bjöm Þorsteinsson að þeir hafi hér notið stuðnings norska ríkisráðsins, en á þeim tíma var sú stofnun með sjálfstæðara móti vegna stjómarkreppu í Dan- mörku.21 Ekki er vitað hvað þeir Einar Þorleifsson og konungur vora að bralla þennan vetur en þegar Einar kom af kon- ungsfundi var eitt fyrsta verk hans að sækja heim Guð- mund Arason. Hvorki er ljóst hvert tilefni Reykhólareiðar Einars var, né heldur hvað fram fór á þeim fundi. Það eina sem vitað er um hana er að Bjöm bróðir hans var með í för.22 Meira er vitað um næsta skref hirð- stjórans. Hann og Bessi Einarsson, sýslumaður í Húnavatnssýslu, stefndu til þings á Sveinsstöðum 9. maí 1446. Vora þar bornar þungar sakir á Guðmund vegna framferðis hans i norður- reiðinni 19 árum áður og var hann úr- skurðaður sekur óbótamaður. Dómur Ein- ars varð á þessa leið ; Nú sakir þess að mér hzt þetta fullt útlegðarverk og lýsti eg Guðmund Arason útiægan og óheilagan, hvar hann kann takast utan griðastaða, og því fyrirbýð eg hveijum manni héðan í frá hann að hýsa eða heima halda eða hafá, á styðja eða styrkja eða nokkra björg veita í móti kóngsins rétti og landsins lögum undir shka sekt sem lögbók vottar, ef það dirfist nokkur gjöra. Svo beiði eg og kref eg og skylda eg til kóngdómsins vegna hvem mann, er mitt bréf heyrir, mig til að styrkja og fiillt lið að veita hann að fanga og undir rétt lög koma. Item í annarri grein fyrirbýð eg hverjum manni í þeim góssum sitja eða nokkum kostnað hafk, sem fyrr nefitdur Guðmundur hefúr áður haft 50 SAGNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.